Dalabyggð bauð úrgangsþjónustu sveitarfélagsins út síðasta haust þar sem Íslenska Gámafélagið átti hagstæðasta tilboðið og kemur til með að sinna þeirri þjónustu áfram. Nú er nýr samningur að taka gildi, en fyrirkomulag sorphirðu heimila og grenndarstöðva verður óbreytt.
Helsta breytingin fellst í fyrirkomulagi innheimtu fyrir gjaldskyldan úrgang á söfnunarstöðinni í Búðardal. Síðustu ár hefur sveitarfélagið innheimt eitt rúmmetragjald fyrir gjaldskyldan úrgang. Með nýjum samning sér Gámafélagið um þá innheimtu og gjaldskráin breytist til samræmis við tilboð þess. Fast sorpgjald fasteignaálagningar mun áfram standa undir stærstum hluta rekstrarkostnaðar söfnunarstöðvarinnar og er gjaldið sem innheimt er á staðnum aðeins til að standa undir móttöku og flutning tiltekinna úrgangsflokka til meðhöndlunar eða urðunar.
Ný gjaldskrá mun taka gildi 1. júní n.k. Áfram verður hægt að borga á staðnum í posa.
Á síðunni fyrir stöðina er allar uppslýsingar um fyrirkomulagið, flokkana, gjaldið o.fl.: Söfnunarstöðin í Búðardal
