Vinnuskóli Dalabyggðar 2026

DalabyggðFréttir

Vinnuskóli Dalabyggðar verður starfræktur frá 9. júní og til 9.júlí, fyrir unglinga fædda 2009 til 2013.
Sigríður Jónsdóttir verður umsjónarmaður Vinnuskólans 2026.

Umsóknareyðblað og reglur vinnuskólans má finna hér neðar í fréttinni.

Umsækjendur eru beðnir um að taka það fram á umsókninni ef sótt hefur verið um sumarstörf á fleiri stöðum.

Umsóknarfrestur er til og með 27. maí nk. Athugið að ekki er hægt að tryggja að umsóknir sem berast eftir þann tíma verði samþykktar.

Boðið er upp á að skrá sig í mat hádegismat í júní (þ.e. meðan leikskóli er starfandi), og þarf að taka það fram á umsókn. Maturinn er framreiddur í Dalabúð kl.12:00 og mun máltíðin samkvæmt kosta 1.600 kr.

Vinnutími Vinnuskóla hefst kl.09:00 og er til kl.15:00 mánudaga til fimmtudaga. 

Reglur um Vinnuskóla Dalabyggðar
Umsóknareyðublað fyrir vinnuskólann 2026

Ef spurningar vakna eða óskað er nánari upplýsinga má hafa samband á netfangið: vinnuskoli@dalir.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei