Sögurölt á Skarði á Skarðsströnd

DalabyggðFréttir

Byggðasafn Dalamanna og Sauðfjársetur á Ströndum halda áfram samstarfi sínu um sögurölt.
Fyrsta rölt sumarsins verður miðvikudaginn 1. júlí kl. 19:30 og hefst á hlaðinu á Skarði.
Stella kollubóndi á Skarði og Valdís safnvörður munu vappa um hlaðið og nágrenni og segja sögur af alls konar konum á Skarði. Húsfreyjum, húskonum, vinnukonum, stúlkum, reifabörnum og draugum. Rétt er þó að taka fram að karlmenn geta komið við sögu í einstaka tilfellum.
Í boði eru örstutt rölt á hlaðinu, stutt rölt með smá hækkun og örlítið lengra rölt þar sem fara þarf yfir eitt vatnsfall.
Allir áhugasamir eru velkomnir á meðan einstaklingsbundnar sóttvarnir og samkomutakmarkanir eru virtar.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei