Sögurölt: Ásgarðsstapi – breyttur dagur

DalabyggðFréttir

Sögurölti á Ásgarðsstapa hefur verið frestað til mánudagsins 20. júlí vegna veðurs, sjá uppfærða frétt hérna að neðan:

 

Í þriðja sögurölti sumarsins verður gengið á Ásgarðsstapa í Hvammssveit. Röltið verður mánudaginn 20.júlí kl. 19:30 og hefst við afleggjarann að Ásgarði.

Í stapanum búa álfar og verður sagt frá samskiptum þeirra við okkur mannverurnar, auk þess sem Ásgarðsfeðgar segja frá og sýna okkur annað markvert á leiðinni.

Í göngunni er meðal annars boðið upp á mýrlendi og fastlega má búast við rigningu. Því er mælt með skóbúnaði við hæfi, vaðstígvélum eða góðum gönguskóm. Í heild verða gengnirum 2,5 km.

Sögurölt er samstarfsverkefni Byggðasafns Dalamanna og Sauðfjárseturs á Ströndum. Strandamenn, Dalamenn og aðrir góðir gestir eru velkomnir.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei