Sögurölt við Steingrímsfjörð

DalabyggðFréttir

Farið verður í sögurölt við Steingrímsfjörð á Ströndum næstkomandi mánudag, þann 2. júlí kl. 19.30 og lagt af stað frá Húsavíkurkleif, rétt sunnan við bæinn Húsavík. Gangan er skipulögð í samstarfi Byggðasafns Dalamanna, Sauðfjárseturs á Ströndum, Rannsóknaseturs HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofu og Náttúrubarnaskólans. Söfnin hafa tekið höndum saman um vikulegt sögurölt í Dölum og á Ströndum í sumar í samvinnu við ýmsa aðila. Síðast var fjölmenni í stórvel heppnuðu fornleifarölti í Ólafsdal í Gilsfirði.

 

Í göngunni á mánudaginn verður lagt upp hjá Húsavíkurkleif sem er merkur fundarstaður steingervinga. Þaðan liggur leiðin eftir fjörunni út með firðinum og skammt frá eru tóftir af byggingum í Naustavík, en engin hús standa þar uppi lengur. Sagt verður frá íbúum í Naustavík, m.a. Grafar-Jóni gamla, en hann skyldi eftir sig stórmerkilega dagbók frá því um og eftir miðja 19. öld og á fjölmarga afkomendur á Ströndum. Nú er unnið að því að skrifa dagbókina hans upp á vegum Rannsóknaseturs HÍ á Ströndum. Fylgdarhamar, Einbúinn og Elísuboði eru þarna í grennd og sögur tengdar öllum þessum stöðum.

Gestir hafa síðan val um að rölta til baka í bílinn frá Naustavík eða ganga áfram að Sauðfjársetrinu í Sævangi (alls 3 km). Þaðan verður bílstjórum skutlað til baka í bíla. Fleiri sögustaðir eru á leiðinni, m.a. aftökustaðurinn Lákaklettur við Miðdalsána. Leiðsögumaður er Jón Jónsson þjóðfræðingur og öruggt að fleiri hafa sögur að segja.

Verið öll hjartanlega velkomin í sögurölt með okkur. Sauðfjársetrið selur þeim sem vilja kaffi og kökur í Sævangi eftir göngu.

 

Sögurölt við Steingrímsfjörð
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei