Staðarhólsbók rímna

DalabyggðFréttir

Í dag hófst formlega verkefnið Handritin alla leið heim þegar Sigurður Þórólfsson í Innri-Fagradal, fyrir hönd Dalamanna og Vestlendinga, tók á móti eftirgerð af Staðarhólsbók rímna úr höndum Kjartans Sveinssonar, fóstru handritsins.
Í tilefni af 350 ára afmæli Árna Magnússonar stendur Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum að sex litlum sýningum víðs vegar um land á sumri komanda. Á hverri sýningu verður eitt handrit tengt viðkomandi héraði í brennidepli.
Hverju handriti hefur verið fengin fóstra sem opnar sýninguna. Fóstrurnar sex eru frú Vigdís Finnbogadóttir, Bragi Valdimar Skúlason textasmiður, Charlotte Böving leikari, Kjartan Sveinsson tónlistarmaður, Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur, Hugleikur Dagsson myndasöguhöfundi og Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður.
Forvörður Árnastofnunar býr til eftirlíkingu af handritinu til sýningar og fóstran fer ásamt handritafræðingi á staðinn og afhendir eftirlíkinguna. Upplýsingar um handritið og Árna Magnússon verður að finna á sýningarstað og í bæklingi.
Vonir standa til að þetta hvetji ekki síst Íslendinga sem ferðast um eigið land til þess að koma við á þessum útvöldu stöðum og fræðast þar – og í framhaldi af heimsókninni – um hið merkilega söfnunarstarf Árna og þýðingu þess fyrir sögu okkar og bókmenntir. Eftirgerðirnar verða til sýnis í sumar á Laugum í Sælingsdal, í Vigur, á Þingeyrum, á Dalvík, á Skriðuklaustri og á Eyrarbakka.
Sýningunum er ætlað að vekja athygli á þeim mikilvæga og fjölbreytta menningararfi sem handritin geyma. Um leið eiga þær að minna á þá staðreynd að Árni Magnússon fékk handrit hvaðanæva að af landinu; handrit voru skrifuð og lesin um allt land og segja má að hvert hérað geti státað af dýrgrip í Árnasafni.
Hönnuðir sýninganna eru Finnur Arnar Arnarson myndlistarmaður og Sigrún Sigvaldadóttir grafískur hönnuður. Um endurgerð handrita sér Hersteinn Brynjólfsson forvörður.
Í Tjarnarlund mætti góð blanda Dalamanna, nágranna og hópur frá Árnarstofnun. Rósa Þorsteinsdóttir þjóðfræðingur flutti bráðskemmtilegt erindi um ýmislegt tengt handritinu. Steindór Andersen kvað rímur og í lokin tvísöng með Kjartani fóstru. Fróðleikur og skemmtun sem ekki er daglega í boði í Dölunum.
Í byrjun júní verður Staðarhólsbók rímna flutt að Laugum í Sælingsdal og verður þar til sýnis í sumar. Sýningin er í samvinnu við Byggðasafn Dalamanna, Héraðsskjalasafn Dalasýslu og Nýpurhyrnu. Þá fékk verkefnið myndarlegan styrk til verksins frá Menningarráði Vesturlands. Að Árni Magnússon var Dalamaður, dregur síðan ekki úr áhuga fyrir verkefninu.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei