Stígamót

DalabyggðFréttir

Stígamót bjóða til opins fundar í Hnyðju Höfðagötu 3 á Hólmavík (Þróunarsetrinu) mánudaginn 5. september kl. 17:15.
Í vetur munu Stígamót bjóða upp á ráðgjafarþjónustu hálfsmánaðarlega á Ísafirði. Það gagnast ef til vill ekki vel fyrir Dali, Strandir og Reykhólasveit. En þar sem við erum á leið á Ísafjörð að kynna þjónustuna, langar okkur að bjóða upp á kynningu líka á Hólmavík.
Þar verður sagt frá þjónustu Stígamóta og hvernig kynferðisofbeldi lítur út frá okkar sjónarhóli og hvað gera má til þess að bæta líðan fólks og koma í veg fyrir ofbeldi.
Allir hjartanlega velkomin.
Starfsfólk Stígamóta

Stígamót

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei