Styrkir úr Þróunarsjóðnum Ísland allt árið

DalabyggðFréttir

Landsbankinn og atvinnuvegaráðuneytið auglýsa eftir umsóknum um styrki úr Þróunarsjóði ferðamála í tengslum við markaðsátakið Ísland allt árið.
Markmið sjóðsins er að styrkja þróun verkefna sem auka framboð utan háannatíma ferðaþjónustu og auka þannig arðsemi fyrirtækja í greininni. Til úthlutunar að þessu sinni eru samtals 35 milljónir króna.

Sjóðurinn hefur á undanförnum árum úthlutað 70 milljónum króna til 32 verkefna og lögð hefur verið áhersla á að styðja við samstarfsverkefni fyrirtækja sem lengt geta ferðamannatímann á tilteknum svæðum, en einnig hafa afbragðsverkefni stakra fyrirtækja notið stuðnings sjóðsins.
Í umsókn þurfa að koma fram skýrar hugmyndir um hvernig verkefni er ætlað að skila í senn aukinni atvinnu og varanlegum verðmætum. Miðað er við að verkefnið verði að vera vel á veg komið innan þriggja ára frá styrkveitingu.
Umsóknarfrestur er til 23. október nk. og er gert ráð fyrir að styrkirnir verði afhentir í desember.

Ísland allt árið – þróunarsjóður

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei