Svæðisskipulag – súpufundur í Tjarnarlundi

DalabyggðFréttir

Kæru íbúar Strandabyggðar, Reykhólahrepps og Dalabyggðar. Nefnd um gerð svæðisskipulags fyrir sveitarfélögin þarf á aðstoð ykkar að halda. Nefndin hefur það hlutverk að móta stefnu um þróun svæðisins til framtíðar. Sú stefna þarf að eiga fótfestu í ykkar reynslu og sýn á svæðið, auðlindir þess og tækifæri.
Þess vegna boðar nefndin til opins súpufundar í Tjarnarlundi í Saurbæ, þriðjudaginn 26. apríl nk. kl. 17:30-21:30. Á fundinum verður svæðisskipulagsverkefnið kynnt og gefinn kostur á spurningum um það. Síðan verður unnið í hópum um ferðaþjónustu, matvælaframleiðslu og aðra framleiðslu úr auðlindum svæðisins. Lögð verða fram gögn til að vinna út frá og spurt verður spurninga sem snúa að þróun vöru og þjónustu, nýtingu auðlinda, umgengni við náttúruna, uppbyggingu, mannvirkjagerð og samvinnu aðila.
Svæðisskipulagsnefnd hvetur alla sem hafa áhuga á framtíð svæðisins að koma á fundinn, kynna sér um hvað svæðisskipulagsverkefnið snýst, hitta nágranna og ræða möguleg tækifæri til að nýta auðlindir og sérkenni svæðisins til eflingar atvinnulífs og byggðar.
Vinsamlegast skráið þátttöku hjá Herborgu Árnadóttur hjá Alta á netfangið herborg@alta.is eða í síma 582 5000.
Góð súpa verður í boði.
Með vorkveðju
Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar.

Svæðisskipulag Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei