Tækifæri til verðmætasköpunar

SveitarstjóriFréttir

Dalabyggð – boð til samtals
Hlédís Sveinsdóttir og Björn Bjarnason unnu að gerð tillagna að baki fyrstu landbúnaðarstefnunni sem Alþingi samþykkti nú 1. júní 2023. Þau vinna nú að tækifæragreiningu fyrir samstarfsverkefni SSV, SSNV og Vestfjarðastofu. Um er að ræða verkefni til að efla byggð á landsvæðum sem eiga mest undir sauðfjárrækt. Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar og verðmætasköpunar á þessum svæðum.
Dagana 28. júní til 4. júlí verða þau á ferð til að hlusta og fræðast.
Þau verða með viðveru í Nýsköpunarsetrinu Miðbraut 11, Búðardal milli kl. 15:00 til 18:00 miðvikudaginn 28. júní og hvetja alla áhugasama til samtals. Ef þið hafið t.d. áhuga á landbúnaði, stöðu sauðfjárræktar, tækifærum í afurðarvinnslu eða annarri nýsköpun – endilega kíkið við og viðrið ykkar hugmyndir. Það verður heitt á könnunni og þau taka vel á móti ykkur.
Ykkur er einnig velkomið að hafa samband við Hlédísi og Björn í gegnum netfangið hlediss@gmail.com
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei