Þjóðaratkvæðagreiðsla 6. mars 2010

DalabyggðFréttir

Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu í Dalabyggð verður haldinn laugardaginn 6. mars 2010.
Kosið verður í einni kjördeild í sveitarfélaginu, í Héraðsbókasafni Dalabyggðar, Miðbraut 11, Búðardal.

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og honum lýkur kl. 22:00
Sérstök athygli er vakin á því að kjósendum er skylt að gera kjörstjórn grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum með mynd.
Aðsetur yfirkjörstjórnar Dalabyggðar á kjördegi verður í Stjórnsýsluhúsinu, Miðbraut 11, Búðardal.

Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Dalabyggðar frá 26. febrúar fram á kjördag.

Búðardal, 1. mars 2010
Yfirkjörstjórn Dalabyggðar,

Bjarni Ásgeirsson,
Elísabet Svansdóttir,
Sæmundur Kristjánsson
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei