Þorrablót á Borðeyri

DalabyggðFréttir

Laugardaginn 22. febrúar halda Ungmennafélagið Harpa og Kvenfélagið Iðunn sitt árlega þorrablót í skólahúsinu á Borðeyri. Húsið opnar kl. 20:00, blótið byrjar kl. 20.30.
Veitingaþjónustan Krásir sér um matinn og hljómsveitin Kopar spilar fyrir dansi. Skemmtiatriði eru í höndum heimamanna.
Aðgangseyrir er 6.500 kr, posi verður á staðnum sem og sjoppa.
Pantanir á blótið eru hjáÁsdísi (símar 451 1123 / 849 7891), Guðrúnu (símar 451 1169 / 864 4869) og þurfa að berast fyrir föstudaginn 21. febrúar.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei