Þorrablót ungmennafélagsins Hörpu og kvenfélagsins Iðunnar verður haldið laugardaginn 2. mars 2013 í skólahúsinu á Borðeyri. Húsið opnar kl. 20, en blótið hefst kl. 20:30.
Gæðakokkar í Borgarnesi reiða fram þorramat og sömuleiðis hljómsveitina Kopar sem leikur fyrir dansi. Einar Georg flytur annál ársins og ýmsir stíga á stokk með söng og glens.
Pantanir í símum 451 0090 (Kristín G.) og 451-1104 (Kristín) fyrir miðvikudagskvöldið 27. febrúar. Miðaverð er 6.500 kr, en 3.000 kr eingöngu á ballið. Posi á staðnum.