Tilkynning um ráðningu sveitarstjóra Dalabyggðar

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur gengið frá ráðningu Lilju Bjargar Ágústsdóttur í stöðu sveitarstjóra. Lilja Björg er fædd og uppalin í Dölunum og bjó þar fram að framhaldsskólaaldri.

Lilja Björg er með meistaragráðu í lögfræði (ML) og B.Sc. gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst, auk kennaramenntunar frá Háskóla Íslands. Hún hefur jafnframt aflað sér réttinda til málflutnings fyrir héraðsdómi.

Lilja býr yfir víðtækri og fjölbreyttri reynslu af stjórnsýslu og rekstri sveitarfélaga. Hún starfar nú sem sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslu hjá Borgarbyggð, þar sem hún ber ábyrgð á framkvæmd stjórnsýslu og fjármála auk þess að gegna hlutverki staðgengils sveitarstjóra. Hún hefur starfað tímabundið sem sveitarstjóri Borgarbyggðar og sinnt fjölbreyttum lögfræðistörfum, bæði sem sérfræðingur hjá Akraneskaupstað og sem lögmaður og meðeigandi lögmannsstofu.
Lilja hefur einnig gegnt fjölda trúnaðar- og stjórnarstarfa, þar á meðal sem forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar og formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.

Sveitarstjórn Dalabyggðar bindur miklar vonir við ráðninguna og telur Lilju hafa þá faglegu þekkingu, reynslu og leiðtogahæfni sem þarf til að leiða sveitarfélagið áfram.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei