Tillaga um deiliskipulag í landi Óss á Skógaströnd

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn Dalabyggðar staðfesti  á fundi sínum þann 18. október 2018 fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar Dalabyggðar um að auglýsa tillögu á deiliskipulagi frístundarbyggðar í landi Óss á Skógarströnd samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagssvæðið er á jörðinni Ósi á Skógarströnd þar sem skilgreint er svæði fyrir frístundarbyggð (F1) í aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016. Svæðið er um 39 ha að stærð og tekur til 18 frístundarlóða  á bilinu 0,5 – 1,5 ha með nýtingarhlutfall ekki hærra en 0,3 ha.

Skipulagsuppdrættir og greinargerð liggja frammi á skrifstofu Dalabyggðar Miðbraut 11, 370 Búðardal þar sem auglýst er eftir athugasemdum við deiliskipulagstillöguna frá 31. október  til 14. desember 2018.

Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa Miðbraut 11, 370 Búðardal eða á netfangið byggingarfulltrúi @dalir.is merkt “Ós deiliskipulag”

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei