Tríó Blik í Dalabúð í kvöld.

DalabyggðFréttir

Tríó Blik verður með tónleika í Dalabúð fimmtudagskvöldið 4. nóvember kl. 20 í Dalabúð.
Tríó Blik skipa Hanna Dóra Sturludóttir söngkona, Freyja Gunnlaugsdóttir á klarínettu og Daníela Hlinkova á píanó.
Þær munu flytja nýjar útsetningar Atla Heimis Sveinssonar á lögum Ása í Bæ og Oddgeirs Kristjánssonar. Á efnisskránni eru þjóðþekktar perlur eftir þá félaga Ása og Geira, lög eins og Ég veit þú kemur, Maja litla, Sólbrúnir vangar, Síldarstúlkurnar ofl.

Tríó Blik hefur starfað saman frá árinu 2006 og kom fyrsti geisladiskur þeirra „Kviða“ út á Íslandi síðastliðið vor.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei