Dalabyggð óskar eftir tilboði í uppsetningu og frágang á 16 tunnustöðvum í sveitarfélaginu.
Framkvæmdin felst í því að koma fyrir forsteyptum L -einingum og lerkiklæðningu.
Dalabyggð útvegar allt efni til framkvæmdarinnar.
Steypueiningar eru 120 cm á hæð og 90 cm á breidd og þyngd c.a.400 kg
Beðið erum verð í hverja einingu eftir stærðum.
Verktími er til 30. júní 2021.
Gögn verða send rafrænt í tölvupósti. Senda skal ósk um útboðsgögn á netfangið vidar@dalir.is.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal eða á dalir@dalir.is fyrir kl.12 þann 20. maí nk. Tilboð verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska kl.13 sama dag.