Lekaleit hitaveitu með ómönnuðum loftförum fyrir RARIK

DalabyggðFréttir

Á morgun 12. maí 2021 og næstu daga munu starfsmenn frá umhverfisverkfræðistofunni ReSource International gera lekaleit á hitaveitu innan Búðardals og nærsveita fyrir hönd RARIK.

Lekaleitin verður gerð með ómönnuðum loftförum (öðru nafni drónum) þar sem teknar verða hitamyndir úr +50 m hæð af bænum og sveitinni vegna mögulegra leka á hitaveitulögnum. Gögnin nýtast RARIK til að stöðva núverandi leka ásamt því að varpa ljósi á mögulegar viðhaldsþarfir.

Áætlað er að lekaleitin taki tvo til þrjá daga og myndirnar eru teknar með hitamyndavél og úr þónokkurri hæð svo ekki er hægt að greina neina persónugreinanlega hluti á þeim.

Lekaleitin er áætluð að muni hefjast á morgun og síðan áfram næstu viku þegar veður leyfir, þegar vindur er hægur og engin úrkoma er í spákortum.

ReSource International mun leitast eftir því að framkvæma verkið með öryggi og hag íbúa að leiðarljósi og þakkar fyrirfram sýndan skilning og þolinmæði.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei