Uppskeruhátíð UDN

DalabyggðFréttir

Uppskeruhátíð barna- og ungmennastarfs UDN og aðildarfélaga verður haldin við Reykhólaskóla miðvikudaginn 2. september klukkan 18.
Allir eru velkomnir á hátíðina. Í boði verða grillaðir hamborgarar og veittar verða viðurkenningar fyrir þátttöku, framfarir og góðan árangur í frjálsum íþróttum, fótbolta og hestamennsku.
Íþróttaálfurinn og Solla stirða munu mæta hress og kát á svæðið.
Þeir sem eiga UDN fatnað eru hvattir til að mæta í honum.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei