Vefkynning á Áfangastaðaáætlun 2021-2023

DalabyggðFréttir

Nú stendur yfir vinna við endurnýjun Áfangastaðaáætlunnar Vesturlands og forgangsröðun verkefna í aðgerðaráætlun fyrir árin 2021 – 2023.

Í dag, fimmtudaginn 12. nóvember verður rafræn netkynning á verkefninu og Áfangastaðaáætlun Vesturlands kynnt. Einnig verður sagt frá þeim áhersluverkefnum sem unnið hefur verið að síðastliðin ár samkvæmt Áfangastaðaáætlun Vesturlands 2018 -2020.

Á meðan fundinum stendur verður hægt að senda inn spurningar í athugasemdum undir beinni útsendingu okkar á Facebook. Spurningar sem varða Áfangastaðaætlun og áhersluverkefni sem berast á meðan kynningunni stendur verður svarað munnlega í kjölfar kynningarinnar og þær sem berast eftir að kynningu er lokið verður svarað skriflega inn á spjallþræðinum á meðan tími vinnst til.

Í kjölfar fundarins verður opnað fyrir vefslóðir að rafrænni kosningu þar sem íbúar geta gefið leiðbeinandi álit á forgangsröðun verkefna varðandi uppbyggingu innviða á áningastöðum og útivistarleiðum á sínu svæði á Vesturlandi. Með þessu móti geta íbúar á Vesturlandi tekið virkan þátt í að móta áherslur í verkefnaáætlun næstu þriggja ára.

Hér má finna slóð inn á netkynninguna sem hefst kl 16.30 í dag:

Netkynning á facebook live

Hér fyrir neðan má nálgast vefslóð inn á leiðbeinandi kosningu:

Kosning – Dalabyggð

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei