Eiríksstaðir bjóða sumarnámskeiðið „Vertu víkingur!“ í samvinnu við Dalabyggð.
Námskeiðið er fyrir börn fædd 2014 – 2019. Á námskeiðinu sameinast útivera, ævintýri, þrautir, handverk og léttur keppnisandi inn á milli. Námskeiðið fer fram bæði í kringum Búðardal og inni á Eiríksstöðum til skiptis. Gert er ráð fyrir að þátttakendur sjái sér sjálf fyrir mat.
Boðið verður upp á frístundaakstur fyrir börn úr dreifbýli í kringum Búðardal í samráði við foreldra. Einnig verður boðið upp á akstur fyrir börn í Búðardal að Eiríksstöðum þá daga sem námskeiðið fer þar fram.
Námskeiðið fer fram á tímabilinu 8. -26. júní er lágmarksskráning ein vika. Athugið að skrá þarf sérstaklega í hverja viku fyrir sig.
Vika 1: 8. – 12. júní
Vika 2: 15. – 19. júní
Vika 3: 22. – 26. júní
Tímasetningar:
Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09.00-15.00
Föstudaga frá kl. 09.00 -12.00
Gjald fyrir hverja viku er 19.500 krónur og er veittur 15% systkinaafsláttur. Hægt er að nýta frístundastyrk upp í námskeiðisgjald.
Lágmarksskráning er 10 börn hverja viku, náist ekki lágmarksskráning fellur sú vika niður.
Skráning fer fram í gegnum Abler síðu Dalabyggðar: Skráning á námskeið
Ef spurningar vakna eða óskað er nánari upplýsinga má hafa samband á netfangið: eiriksstadir@eiriksstadir.is
