
Þann 28. febrúar 2026 var tekin í notkun ný og glæsileg íþróttamiðstöð í Búðardal.
Íþróttamiðstöðin stendur í kjarna Búðardals í nálægð við grunn- og leikskóla og samanstendur af tæplega 700fm fjölgreina parketsal, líkamsrækt, meðferðaherbergi (sjúkraþjálfun, nudd o.s.frv.) ásamt 25 metra útisundlaug með einstöku útssýni, heitum pottum, vaðlaug, sauna og köldu keri.

Athugið: Enn er unnið að frágangi á sundlaugasvæði og er því laugin lokuð. Nánari upplýsingar um opnun sundlaugarinnar verður auglýst síðar.
Opnunartími íþróttamiðstöðvar:
Mánudaga – föstudaga: 07:00-21:00
Laugardaga og sunnudaga: 10:00-16:00
Gjaldskrá íþróttamiðstöðvar í Búðardal 2026
Umgengnisreglur íþróttamannvirkja í Dalabyggð
Öryggis- og umgengisreglur sundlaugar
Tölvupóstur: ithrottamidstod@dalir.is
Hérna má sjá svipmyndir frá uppbyggingu mannvirkjanna: Íþróttamiðstöð – framvinda í myndum
Hér fyrir neðan má sjá myndir úr íþróttamiðstöðinni við opnun:



Myndir: Lorenzo Vietina