| |
| 1. 2602007 - Félagsmál 2026 | |
| |
|
| |
| 2. 2505022 - Samningur um barnaverndarþjónustu | |
| Framlengd undanþága Dalabyggðar til að vera sjálfstæð í málaflokknum er í gildi fram til 28.02.2026. Farið yfir stöðu mála í samskiptum við nærliggjandi barnaverndarþjónustur. | | |
|
| 3. 2501029 - Skammtímadvöl barna | |
Sveitarfélög á Vesturlandi; Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Snæfellsbær, Hvalfjarðarsveit og Dalabyggð, hafa átt í samráði við Þroskahjálp á Vesturlandi um brýna þörf fyrir uppbyggingu skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi. Með sameiginlegri viljayfirlýsingu, lýsa aðilar yfir vilja sínum til að vinna saman að framgangi verkefnisins með það að markmiði að tryggja börnum og fjölskyldum þeirra örugga og faglega þjónustu á svæðinu.
Hér að neðan er rakin tímalína máls, frá því að samtalið hófst og fram til dagsins í dag.
Á fyrsta fundi stjórnenda velferðarþjónustu á Vesturlandi þann 20.11.2024 var þörfin fyrir skammtímadvöl á Vesturlandi rædd og bókað í fundargerð að stjórnendur hvers sveitarfélags myndu kortleggja þörfina á úrræðinu.
Á fundi stjórnenda velferðarþjónustu þann 11.12.2024 var það bókað að hvert sveitarfélag myndi óska eftir að fá heimild frá sínu fagráði varðandi áframhaldandi samtal. Markmið samtalsins yrði að fara saman í uppbyggingu á skammtímadvöl á Vesturlandi.
Á fundi stjórnenda velferðarþjónustu þann 08.01.2025 var bókað að stjórnendur væru að ræða við sín fagráð og fengið góðan meðbyr. Á fundinum var lagt upp með að allir stjórnendur væru komnir með heimild eða bókun þess efnis að halda áfram vinnslu verkefnisins fyrir næsta fund hópsins.
Þann 15.01.2025 var bókað á fundi félagsmálanefndar Dalabyggðar að nefndin fagni því að til skoðunar sé að koma á fót skammtímadvöl á Vesturlandi.
Á fundi stjórnenda í velferðarþjónustu þann 12.02.2025 var bókað að stjórnendur hefðu farið í greiningu á þörfinni í sínum sveitarfélögum og að umræða um skammtímavistun myndi halda áfram á næsta fundi. Þá var einnig rætt um möguleika á húsnæði fyrir úrræðið á Vesturlandi.
Á fundi stjórnenda í velferðarþjónsutu þann 10.03.2025 var ákveðið að leggja upp með að fyrir næsta fund verði stjórnendur búnir að kortleggja stöðuna á sínu svæði og þörfina fyrir úrræðið.
Á þessum tímapunkti í ferlinu fóru stjórnendur jafnframt að ræða almennt um þá húsnæðismöguleika sem í boði væru undir úrræðið á svæðinu. Stjórnendum bárust upplýsingar um að húsnæðið að Holti í Borgarbyggð gæti mögulega komið til skoðunar en það er í eigu Þroskahjálpar Vesturlands.
Þann 19.06.2025 fór hluti stjórnenda í heimsókn í skammtímadvölina Móaflöt sem staðsett er í Garðabæ. Fulltrúar staðarins tóku á móti hópnum og veittu mikilvæga innsýn inn í rekstur og fyrirkomulag úrræðisins en þar dvelja börn og ungmenni til 18 ára aldurs. Í kjölfar heimsóknarinnar var bókað að haft yrði samband við formann Þroskahjálpar á Vesturlandi með það að markmiði að óska eftir sameiginlegum fundi.
Þann 8.10.2025 var fundur með stjórnendum í velferðarþjónustu og formanni Þroskahjálpar á Vesturlandi. Þar voru skoðaðir möguleikar á samstarfi við Þroskahjálp og húsnæðið að Holti. Þar kom fram að Þroskahjálp á Vesturlandi hefði áhuga á samstarfi við sveitarfélögin á Vesturlandi. Eins kom það fram í samtalinu að aðrir aðilar hefðu einnig áhuga á að nýta Holt undir rekstur en að Þroskahjálp hefði áhuga á því að húsnæðið yrði uppfært með það í huga að hægt yrði að nýta það fyrir skammtímadvöl fyrir börn og ungmenni á Vesturlandi. Þá var bókað að stjórnendur myndu kynna málið fyrir sínum fagráðum og að útbúin yrði viljayfirlýsing ásamt því að áframhaldandi samtal yrði við Þroskahjálp.
Viljayfirlýsing sveitarfélaga við Þroskahjálp var lögð fyrir félagsmálanefnd Dalabyggðar þann 3.12.2025. Félagsmálanefnd lýsti yfir ánægju með að þetta skref sé tekið og styður það að Dalabyggð verði aðili að viljayfirlýsingunni. Sama dag, þann 3.12.2025 skrifaði Dalabyggð undir sameiginlega viljayfirlýsingu ásamt sveitarfélögum á Vesturlandi og var lagt til að verkefnahópur myndi skila niðurstöðum sínum þann 13.02.2026.
Í kjölfar undirritunar hafa stjórnendur á Vesturlandi fundað nánast vikulega með það að markmiði að útfæra verkefnið nánar í samræmi við efni viljayfirlýsingarinnar. Vinnan hefur einkum snúið að mótun þjónustunnar og skilgreiningu helstu forsendna fyrir uppbyggingu skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi.
Í þessari vinnu hefur verið lögð áhersla á að móta heildstæða skammtímadvöl sem uppfyllir gildandi lög og reglugerðir um málefni fatlaðs fólks, tryggir jafnt aðgengi barna og fjölskyldna óháð búsetu og byggir á faglegum gæðaviðmiðum. Þá er vinna hafin við að móta sameiginlega nálgun að framtíðarfyrirkomulagi reksturs, þar á meðal fjármögnun þjónustunnar á grundvelli fjölda þjónustuþega.
Þann 27.01.2026 funduðu stjórnendur í velferðarþjónustu á Vesturlandi með formanni og stjórnarformanni Þroskahjálpar á Vesturlandi. Farið var yfir stöðu mála, teikningar af húsnæðinu kynntar og lagðar til þær breytingar sem stjórnendur telja nauðsynlegt að ráðast þurfi í.
Næstu skref í verkefninu eru að fara í vettvangsferð að Holti með fulltrúum Þroskahjálpar, SSV og skipulagssviðum sveitarfélaga. Þar er markmiðið að skoða aftur aðstæður m.a með tilliti til aðgengismála.
Félagsmálanefnd bindur vonir við að skammtímadvöl fyrir fötluð börn geti opnað sem fyrst á Vesturlandi.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 4. 2501027 - Farsæld barna í Dalabyggð | |
| Verkefnastjóri fjölskyldumála fór yfir stöðu mála. | | |
|
| 5. 2411008 - Gott að eldast á Vesturlandi | |
Stofnað hefur verið MÓMA teymi (móttöku- og matsteymi) í Dalabyggð. Í teyminu sitja fulltrúar frá Dalabyggð, HVE og Silfurtúni sem munu fara sameiginlega yfir allar umsóknir sem berast um félagslega heimaþjónustu og heimahjúkrun. | | |
|