Eiríksstaðir

Heimili Eiríks rauða og Leifs heppna var að Eiríksstöðum í Haukadal í Dalasýslu, langt frá ys og þys Evrópu. Þar við langeldinn hófst spennandi kafli mannkynssögunnar; fundur Grænlands og uppgötvun Norður Ameríku.

Á Eiríksstöðum er endurskapað andrúmsloft sögustunda í langhúsi frá 10. öld og hægt er að heimsækja rústir upprunalega bæjar Eiríks rauða og ganga í æskuspor Leifs heppna Eiríkssonar.

Sjá nánar á www.eiriksstadir.is

Vinsamlegast hafið beint samband við rekstraraðila til að ganga frá bókunum.
History Up Close ehf.
Sími: 899-7111 og netfang: eiriksstadir@eiriksstadir.is.

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei