Laust til umsóknar er starf við hafnarvörslu í Skarðsstöð.
Vinnutími er breytilegur og starfið því unnið í tímavinnu.
Í starfinu felst að sinna þjónustu og eftirliti við höfnina á Skarðsstöð þ.á m. vigtun á afla. Einnig annast starfsmaðurinn umhirðu með salernum sem eru staðsett við Skarðsstoð og eru opin á sumrin.
Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirtalin skilyrði:
- Vera eldri en 18 ára.
- Geta unnið sjálfstætt og skipulega.
- Eiga auðvelt með mannleg samskipti.
- Þurfa að sækja námskeið fyrir vigtarmenn sem haldið er í lok maí.
Umsóknir um starfið skulu sendar á netfangið dalir@dalir.is ekki síðar en 27. maí næstkomandi. Þangað er einnig hægt að senda fyrirspurnir um þau.