Fréttir.

27.10.2010

Kynningarfundur um Grunnmenntaskólann

Kynningarfundur um Grunnmenntaskólann verður í Tjarnarlundi í Saurbæ fimmtudagskvöldið 28. október kl 20:30. Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa sameiginlega að því að kynna Grunnmenntaskólann. Í kjölfar bættra samgangna á þessu svæði vilja aðilar hjá báðum miðstöðvum auka samvinnuna sem mun skila sér í bættri þjónustu í fullorðinsfræðslu fyrir íbúa á þessu svæði. Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi og
Skoða betur
25.10.2010

Allt er sjötugum fært

Sturlaugur á Efri-Brunná gerði sér lítið fyrir og gekk á 102 fjöll fyrstu átta mánuði ársins. Sturlaugur Eyjólfsson er félagi í Ferðafélagi Íslands og skráði fjallgöngur sínar í Fjallabók FÍ. Hann byrjaði að safna fjöllum í upphafi árs og átta mánuðum síðar voru fjöllin orðin 102. Þá gekk Sturlaugur Glerárhringinn í sumar en þá eru gengið samfleytt í 24 klukkutíma
Skoða betur
24.10.2010

Haustfagnaður FSD úrslit

Fyrir áhugasama um úrslit í hinum ýmsu keppnum á Haustfagnaði FSD verða þau helstu tíunduð hér á eftir. Hyrndir lambhrútar 1. Lamb nr. 118 frá Rauðbarðarholti í Hvammssveit. Undan Snæ 09-521 og 06-669. Var hann jafnframt dæmdur besti hrútur keppninnar. 2. Lamb nr. 497 frá Vatni í Haukadal. Undan Hnall 08-084 og 06-247. 3. Lamb nr. 10 frá Klifmýri á
Skoða betur
23.10.2010

Haustfagnaður FSD

Ár hvert að hausti stendur Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu fyrir haustfagnaði þar sem dagskráin samanstendur af heimsóknum á sauðfjárbú, ýmiskonar verðlaunaafhendingum fyrir sauðfjárrækt og almennri gleði. Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu árið 2019. Bestu 5 vetra ærnar 2019 verðlaunaðar. 1. sæti var ærin 14-413 frá Háafelli með einkunnina 114,7. 2. sæti var ærin 14-855 frá Klifmýri með einkunnina 112,7. 3.
Skoða betur
22.10.2010

Menntastoðir í fjarnámi til Hólmavíkur

Nú gefst fólki á Norðurlandi og Vestfjörðum tækifæri til að stunda nám í Menntastoðum með dreifnámsfyrirkomulagi eða fjarfundabúnaði. Dreifnám felst í því að kennt er einu sinni í viku á þriðjudögum frá kl. 16:00-21:00 og annan hvern laugardag frá kl. 09:00-17:00. Kennslan fer fram á Akureyri en þeir sem búa annars staðar geta sótt námið í gegnum fjarfundabúnað í námsverum,
Skoða betur
18.10.2010

Sveitarstjórn Dalabyggðar

65. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 19. október 2010 og hefst kl. 16:00 í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal. Dagskrá: 1. Skýrsla sveitarstjóra2. Fundargerð sveitarstjórnar frá 15. september 2010.3. Fundargerðir byggðarráðs frá 12. október 2010.4. Fundargerð ferða- og menningarmálanefndar frá 6. október 2010.5. Fundargerð Breiðafjarðarnefndar frá 18. maí 2010. Málsnr. 1009036.6. Samningur um sameiginlegt þjónustusvæði Vesturlands um þjónustu við fatlaða. Að
Skoða betur
13.10.2010

Haustfagnaður FSD

Dagana 22.-24. október verður árlegur haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) og er dagskráin nú komin.   Föstudagurinn 22. október 14:30 Stórholt í Saurbæ Lambhrútasýning norðan girðingar Opin fjárhús 19:30 Dalabúð í Búðardal Sviðaveisla Ungir harmonikkuleikarar Hagyrðingar Harmonikkuball með Geirmundi Laugardagurinn 23. október 10:00 Stóra-Vatnshorn í Haukadal Lambhrútasýning sunnan girðingar Opin fjárhús Heimalingar 10:00 Laugar í Sælingsdal Opna hrútamótið í
Skoða betur
07.10.2010

Hlutastarf í heimaþjónustu

Starfsmaður óskast í heimaþjónustu í Dalabyggð. Um er að ræða 6 klukkustundir, aðra hvora viku, á heimili út í sveit. Allar nánari upplýsingar veitir Gróa Dal í síma 892-2332, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga, kl. 13-17.
Skoða betur
04.10.2010

Atvinnuráðgjafi SSV

Atvinnuráðgjafi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Ólafur Sveinsson, verður til viðtals í Búðardal einn dag í mánuði á tímabilinu október 2010 til maí 2011. Tímapantanir eftirtalda daga eru hjá SSV í síma 437 1318. 14. október fimmtudagur 13-15 4. nóvember fimmtudagur 13-15 7. desember þriðjudagur 13-15 4. janúar þriðjudagur 13-15 1. febrúar þriðjudagur 13-15 1. mars þriðjudagur 13-15 5. apríl þriðjudagur
Skoða betur
29.09.2010

Liðveisla – Skemmtilegt og gefandi!

Félagsþjónusta Dala óskar eftir hressum einstaklingi til að taka að sér liðveislu fyrir 8 ára fatlaðan dreng tvo til þrjá tíma í mánuði. Þeir sem hafa áhuga hafi samband við Halldór Gunnarsson félagsráðgjafa í síma 433 7100 eða á netfangið halldor@borgarbyggd.is Félagsþjónusta Dala.
Skoða betur
24.09.2010

Sápugerð

Skráning á námskeið Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands um sápugerð 30. september stendur nú yfir. Á námskeiðinu er greint frá því hvernig sápa verður til og hvað þarf af efnum og áhöldum við gerð sápu í föstu formi. Algeng aðferð verður kennd en fleiri nefndar. Farið er yfir nokkrar glærur og að því loknu er sýnikennsla þar sem við framkvæmum það sem farið
Skoða betur
22.09.2010

Atvinna í boði

Vegna forfalla vantar matráð í 40 % starf fram að áramótum við Auðarskóla Tjarnarlundi. Vinnutími er mánudaga – fimmtudaga frá 10.00 – 14.00. Áhugasamir hafi samband við Eyjólf Sturlaugsson skólastjóra í síma 899 7037 eða á netfangið eyjolfur@dalir.is
Skoða betur
Fréttir.