18.01.2018Símasambandslaust Vegna viðgerðar á tölvu- og símakerfi verður símasambandslaust við skrifstofu Dalabyggðar í dag, fimmtudaginn 18. janúar, kl. 12-14.Skoða betur
18.01.2018Sýsluskrifstofan lokuð Föstudaginn 19. janúar 2018 verður Sýsluskrifstofan í Búðardal lokuð vegna starfsdags. Sýslumaðurinn á VesturlandiSkoða betur
15.01.2018Uppbyggingarsjóður Vesturlands Auglýst er eftir umsóknum í uppbyggingasjóð Vesturlands. Veittir verða atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrkir, menningarstyrkir ásamt stofn- og rekstrarstyrkjum til menningarverkefna. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til miðnættis 21. janúar. Umsóknarferlið er á Ísland.is og notast er við Íslykil til innskráningar. Nánari upplýsingar má fá í síma 433 2310 eða senda fyrirspurn til uppbyggingasjodur@ssv.is. Frestur til að skila inn umsóknum rennur út áSkoða betur
15.01.2018Áfangastaðaáætlun ferðamála á Vesturlandi 2018-2020 Annar vinnufundur um áætlun um áfangastaði á Vesturlandi verður haldinn í Dalabúð miðvikudaginn 17. janúar kl. 17-20. Sett verða markmið og listar yfir þau verkefni sem þarf að vinna á næstu árum til að gera ferðaþjónustuna í Dölum öfluga. Allir sem hafa áhuga á þróun ferðamála er velkomið að taka þátt í þessari vinnu.Skoða betur
12.01.2018Sveitarstjórn Dalabyggðar 157. fundur 157. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 16. janúar 2018 og hefst kl. 18:00. Dagskrá Almenn mál 1. Sala eigna 2. Samkomulag um uppgjör við Brú lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga 3. Ný persónuverndarlöggjöf Almenn mál – umsagnir og vísanir 4. Aðalskipulag Dalabyggðar – breytingartillaga 5. Íþróttamannvirki í Búðardal 6. Jarðir sem tilheyra verndarsvæði Breiðafjarðar – Yfirlit 7. Áfangastaðaáætlun DMP 8. Samþykkt um stjórnSkoða betur
10.01.2018Bingó í Árbliki Kvenfélagið Fjóla heldur bingó sunnudaginn 14. janúar kl. 13:30 í Árbliki.Spjaldið kostar 800 kr. og allur ágóði rennur til góðra málefna í heimabyggð.Skoða betur
09.01.2018Háls-, nef og eyrnalæknir Þórir Bergmundsson, háls-, nef og eyrnalæknir verður með móttöku á Heilsugæslustöðinni í Búðardal föstudaginn 19. janúar. Tímapantanir eru í síma 432 1450.Skoða betur
05.01.2018Þrettándagleði Skátafélagið Stígandi og Björgunarsveitin Ósk kveikja varðeld við Búðarbraut föstudaginn 5. janúar kl. 17:30 og síðan í kakó í Dalabúð. Kynjaverur af öllu tagi eru sérstaklega velkomnar, þar á meðal álfakonungar, álfadrottningar, álfaprinsar, álfaprinsessur tröllkarlar og tröllkerlingar.Skoða betur
04.01.2018Uppbyggingasjóður Vesturlands Ólafur Sveinsson atvinnuráðgjafi og Elísabet Haraldsdóttir menningarfulltrúi verða með viðveru á skrifstofu Dalabyggðar þriðjudaginn 9. janúar kl. 13:30-15:30 og veita ráðgjöf til þeirra sem hyggjast sækja um styrki í Uppbyggingasjóð Vesturlands.Skoða betur
02.01.2018Rafbókasafn Héraðsbókasafn Dalasýslu hefur gerst aðili að rafbókasafninu og er það vonandi kærkomin viðbót við þjónustu safnsins. Frá og með 2. janúar 2018 geta lánþegar sótt um aðild að rafbókasafninu og byrjað að nýta sér kosti þess. Til þess að fá aðgengi að Rafbókasafninu þarf lánþegi að vera með gilt bókasafnskort og velja sér aðgangsorð sem bókavörður skráir inn í gangagrunnSkoða betur
02.01.2018Félagsvist í Árbliki Kvenfélagið Fjóla stendur fyrir félagsvist í Árbliki föstudaginn 5. janúar kl. 20. Verð fyrir fullorðna er 800 kr, en frítt fyrir 14 ára og yngri. kaffiveitingar.Skoða betur
02.01.2018Úr mold í stein Fyrsta sögustund ársins 2018 verður laugardaginn 6. janúar kl. 15 á Byggðasafni Dalamanna. Þá mun Bogi Kristinsson byggingafulltrúi Dalabyggðar segja frá þróun torfbæja til steinsteypuhúsa, gera grein fyrir ólíkum byggingastílum síðari tíma og mikilvægi varðveislu eldri húsa. Aðgangseyrir á sögustundir verður sem fyrr 500 kr fyrir fullorðna og frítt fyrir börn yngri en 18 ára í fylgd með fullorðnum. KaffiSkoða betur