Fréttir.

20.03.2018

Fjörugróður og rekabóndi

Mánudaginn 26. mars kl. 19 verða tveir fyrirlestrar á Byggðasafni Dalamanna tengdir strandmenningu í tilefni menningararfsárs Evrópu 2018. Hafdís Sturlaugsdóttir landnýtingarráðunautur hjá Náttúrustofu Vestfjarða mun fjalla um fjörugróður og nýtingu hans og Matthías Sævar Lýðsson bóndi í Húsavík á Ströndum mun segja frá lífi rekabóndans. Allir áhugasamir eru velkomnir, enginn aðgangseyrir. Árið 2018 er tileinkað menningararfi Evrópu. Markmið Menningararfsár Evrópu er að
Skoða betur
16.03.2018

Dalaveitur, lagning ljósleiðara 2018

Dalaveitur ehf. óska eftir tilboðum í lagningu ljósleiðara í dreifbýli Dalabyggðar. Leggja skal ljósleiðaralagnir, ganga frá þeim inn fyrir vegg á tengistöðum og ganga frá yfirborði og brunnum. Verkið skiptist í þrjá hluta og geta bjóðendur boðið í eina, tvær eða þrjár leiðir. Helstu magntölur: Leið 4: Plæging stofn- og heimtauga 55 km Leið 5: Plæging stofn- og heimtauga 56
Skoða betur
15.03.2018

Til þeirra sem sinna ferðamönnum í Dalabyggð

Dalabyggð vekur athygli á að flest fyrirtæki í ferðaþjónustu eru annað hvort rekin með tilteknum leyfum eða opinberri skráningu. Þannig eru ferðaskrifstofur (sem skipuleggja ferðir lengra en yfir daginn) og ferðaskipuleggjendur (sem skipuleggja dagsferðir eða styttri) háðir leyfi frá Ferðamálastofu. Gistileyfi þarf fyrir gistiþjónustu í atvinnuskyni, en einnig er heimagisting leyfileg, en skráningarskyld.  Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur eftirlit á landsvísu
Skoða betur
15.03.2018

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 159. fundur

159. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 20. mars 2018 og hefst kl. 18:00. Dagskrá Almenn mál 1. Ársreikningur 2017 Almenn mál – umsagnir og vísanir 2. Áfangastaðaáætlun DMP 3. Ólafsdalur 2 – lögbýlisskráning 4. Sameining almannavarnanefnda á Vesturlandi 5. Brunavarnaáætlun 6. Aðalskipulag 2017-2029 7. Sameiginleg lögreglusamþykkt fyrir sveitarfélögin á Vesturlandi 8. Byggðaáætlun 2018 – 2024 9. Mál frá Alþingi til umsagnar
Skoða betur
09.03.2018

Garðyrkjufélag Dalabyggðar

Miðvikudaginn 14. mars kl 20 efnir Garðyrkjufélag Dalabyggðar til fræðslukvölds í fundarsal stjórnsýsluhússin við Miðbraut 11 í Búðardal. Kristinn H. Þorsteinsson fræðslustjóri Garðyrkjufélags Íslands mun í erindi fjalla um göngustígagerð. Af því loknu mun Sigurbjörn Einarsson jarðvegslíffræðingur fjalla um mikilvægi svepprótar, sambýlisform sveppa og trjáróta fyrir vöxt og viðgang trjáa. Hann mun einnig lýsa hvernig bæta megi lifun trjáplantna eftir útplöntun með því
Skoða betur
08.03.2018

Breyting á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 20. febrúar 2018 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016, í samræmi við 36 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögur að breytingum á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 varðandi íbúðarsvæði í Búðardal, stækkun verslunar- og þjónustusvæðis í Búðardal og frístundasvæði í landi Hlíðar í Hörðudal. Tillögurnar liggja frammi frá 8. mars 2018 á skrifstofu Dalabyggðar,
Skoða betur
08.03.2018

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Ólafsdal

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 20. febrúar 2018 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi í Ólafsdal í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst meðal annars í ákveðnum áherslubreytingum frá gildistöku þess. Til að mynda er nýr byggingarreitur fyrir vélaskemmu, víkkun heimilda á núverandi byggingareitum og nýr kafli um verndun menningarlandslags. Tillögurnar liggja frammi frá 8.
Skoða betur
05.03.2018

Kótilettukvöld Lions

Kótilettukvöld Lionsklúbbs Búðardals verður í Dalabúð laugardagskvöldið 10. mars. Húsið opnar kl. 19:30, en borðhald hefst kl. 20:00. Lambakótilettur með tilheyrandi og veglegir happdrættisvinningar. Miði á skemmtunina gildir sem happdrættismiði og einnig verður hægt að kaupa aukamiða fyrir happdrættið á 1.000 kr.  Hljómsveitin B4 leikur fyrir dansi að borðhaldi og skemmtun lokinni. Allir sem að skemmtuninni koma gefa vinnu sína
Skoða betur
02.03.2018

Fréttatilkynning frá Óbyggðanefnd

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur, fyrir hönd íslenska ríkisins, afhent óbyggðanefnd kröfur ríkisins um þjóðlendur á svonefndu svæði 9B, það er Snæfellsnesi ásamt fyrrum Kolbeinsstaðahreppi og fyrrum Skógarstrandarhreppi. Á svæði 9B eru eftirtalin sveitarfélög: Snæfellsbær, Grundarfjarðarbær, Eyja- og Miklaholtshreppur, Helgafellssveit, Stykkishólmsbær, hluti Borgarbyggðar (fyrrum Kolbeinsstaðahreppur) og hluti Dalabyggðar (fyrrum Skógarstrandarhreppur). Óbyggðanefnd, sem er úrskurðarnefnd á stjórnsýslustigi, kynnir nú þessar kröfur, í samræmi
Skoða betur
27.02.2018

Umsögn sveitarstjórnar til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 20. febrúar sl. var fjallað um bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins dags. 14. febrúar þar sem óskað er umsagnar sveitarstjórnar um kvörtun Bjarna Ásgeirssonar sem barst ráðuneytinu með bréfi dags. 6. febrúar 2018. Sveitarstjóra var falið að gera drög að umsögn og samþykkt var tillaga um að bréf ráðuneytisins og umsögn Dalabyggðar verði birt á vef Dalabyggðar. Það
Skoða betur
27.02.2018

Bókavörður Héraðsbókasafns Dalasýslu

Dalabyggð auglýsir starf bókavarðar Héraðsbókasafns Dalasýslu laust til umsóknar. Leitað er að bókasafns- og upplýsingafræðingi en til greina kemur að ráða ófaglærðan starfsmann. Starfshlutfall er 50%. Helstu verkefni Bókavörður sér um innkaup bóka, skráir í tölvukerfi, afgreiðir bækur og önnur gögn, raðar í hillur, merkir og plastar bækur, leiðbeinir viðskiptavinum um safnkost og aðstoðar við millisafnalán. Hæfniskröfur Menntun sem nýtist í
Skoða betur
27.02.2018

Íbúðir til leigu fyrir eldri borgara og lífeyrisþega

Tvær íbúðir að Gunnarsbraut 11a og 11b í Búðardal eru lausar til leigu frá 1. apríl 2018.  Hvor íbúð er 81 m2.  Mánaðarleg húsaleiga er nú 84.997 kr. og tekur hún breytingum samkvæmt vísitölu neysluverðs til verðtryggingar í byrjun hvers árs.   Umsóknareyðublöð eru á vef Dalabyggðar og eru einnig fáanleg á skrifstofu. Umsóknum skal skila á skrifstofu Dalabyggðar fyrir 9.
Skoða betur
Fréttir.