Jólakveðja sveitarstjóra Dalabyggðar 2023

DalabyggðFréttir

Ágætu íbúar Dalabyggðar og aðrir velunnarar Dalanna einu og sönnu. Um leið og ég óska ykkur öllum gleðilegrar jólahátíðar með þökk fyrir góð samskipti á árinu sem senn er á enda þá langar mig til að stikla á stóru varðandi það sem helst hefur verið á döfinni á vettvangi Dalabyggðar á árinu 2023 og eins að koma aðeins inn á …

Bólusetning við influensu og covid-19

DalabyggðFréttir

Síðasti bólusetningardagur í Búðardal fyrir áramót verður þriðjudaginn 19. desember en hægt verður að fá flensusprautu á Reykhólum á miðvikudögum.   Tímabókanir eru í síma 432 1450 Sérstaklega er hvatt til þess að forgangshópar láti bólusetja sig en forgangshópar eru: Börn fædd 2020 og yngri sem náð hafa 6 mánaða aldri  60 ára og eldri  Yngri en 60 ára með undirliggjandi …

Jólasýningar í stjórnsýsluhúsinu

DalabyggðFréttir

Á ferðatíma jólasveina (12. desember til 6. janúar) verða fjórar örsýningar tengdar jólunum í stjórnsýsluhúsinu. Eru gestir og gangandi hvattir til að heimsækja stjórnsýsluhúsið og njóta þessara sýninga auk listaverka frá Listasafni Dalasýslu sem prýða sali og ganga hússins. Í anddyri stjórnsýsluhússins er sýnishorn af eldri jólakortum í vörslu Héraðsskjalasafns Dalasýslu og jólatré Byggðasafns Dalamanna með jólaskrauti í boði Kvenfélagsins …

Íbúakönnun landshlutanna: Taktu þátt, hafðu hátt og sýndu mátt

DalabyggðFréttir

Fyrir nokkrum vikum fór Íbúakönnun landshlutanna af stað á öllu landinu. Sem fyrr er lögð áhersla á að spyrja þátttakendur aðallega um mat þeirra á búsetuskilyrðum, almenna velferð, stöðu þeirra á vinnumarkaði og hver framtíðaráform þeirra séu um búsetu. Gögn þessarar könnunar hafa nú þegar gefið þeim sem vinna að byggðaþróun og á sveitarstjórnarstiginu mikilvægar upplýsingar um raunverulega stöðu í …

Ljósmynd: Sigmundur Geir Sigmundsson

Gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu Dalabyggðar árin 2024 til 2027

DalabyggðFréttir

Fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2024-2027 var lögð fram til síðari umræðu í sveitarstjórn og samþykkt einróma fimmtudaginn 7. desember 2023. Áætluð rekstrarniðurstaða samstæðunnar (A og B hluta) árið 2024 er jákvæð um 85,9 milljónir króna. Nýjasta útkomuspá fyrir árið 2023 gerir ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á 63 milljónir króna á árinu 2023 þannig að áfram er haldið á sömu …

Framtíð bæjarhátíðar – kallað eftir skoðunum

DalabyggðFréttir

Á 35. fundi menningarmálanefndar var tekið fyrir skipulag bæjarhátíðar 2024.  Frá 2008 hefur bæjarhátíðin „Heim í Búðardal“ verið haldin annað hvert ár (á sléttri tölu). Nefndin bókaði undir dagskrárliðnum ákveðnar spurningar og er kallað eftir skoðunum íbúa á þeim.  Nú er verið að halda bæjarhátíðina í níunda skiptið og spurning um hvað íbúum finnst gefast vel eða vanta í tengslum …

Síðustu viðburðir félags eldri borgara 2023

DalabyggðFréttir

Félag eldri borgara í Dölum og Reykhólahreppi endar árið með tveimur viðburðum í næstu viku. Þriðjudaginn 12. desember verður farið á Barmahlíð og boðið upp á bingó, veitingar og spjall. Lagt verður af stað frá Silfurtúni kl. 13:00 á einkabílum. Bingóið byrjar kl. 14:00 Fimmtudaginn 14. desember verðum við svo með bingó á Silfurtúni, þar verður líka söngur og jólastemning. …

Samstarfssamningur við FEBDOR undirritaður

DalabyggðFréttir

Í gær var undirritaður samstarfssamningur milli Dalabyggðar og Félags eldri borgara í Dölum og Reykhólahreppi (FEBDOR). Markmið samningsins er meðal annars að efla starf félags eldri borgara og stuðla að auknu samstarfi milli félagsins og Dalabyggðar. Með samningnum fær félagið starfsstyrk að upphæð 400.000kr.- ásamt óbeinum styrkjum. Óbeinir styrkir fela m.a. í sér afnot af húsnæði sveitarfélagsins og prentun/ljósritun gagna. …

Myndina af hópnum tók Ása María Hauksdóttir.

Þín allra bestu jól – nýtt jólalag Braga Valdimars Skúlasonar tileinkað Dölunum

DalabyggðFréttir

Það eru svo sannarlega menningarjól í Dalabyggð þetta árið, tónleikar, bókakynningar, spilakvöld og fleira sem gleðja unga sem eldri. Á sunnudaginn síðastliðinn var haldin aðventuhátíð í Dalabyggð. Þar tóku höndum saman Kirkjukór Dalaprestakalls ásamt Sönghópnum Hljómbroti og sungu nokkur vel valin jólalög. Sr. Snævar Jón Andrjesson las jólasögur á milli söngatriða. Um 100 manns sóttu viðburðinn sem haldinn var í …

Opið fyrir umsóknir í menningarmálaverkefnasjóð Dalabyggðar

DalabyggðFréttir

Menningarmálanefnd Dalabyggðar auglýsir eftir umsóknum í menningarmálaverkefnasjóð. Til úthlutunar 2024 verða 1.000.000 kr.- Hlutverk sjóðsins er að styðja við menningarmál í Dalabyggð og er það gert með því að veita styrki eftir því sem menningarmálanefnd Dalabyggðar telur þjóna markmiðum sjóðsins. Umsækjendur í sjóðinn geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir með lögheimili í Dalabyggð. Umsóknarfrestur er til og með 15. …