Fréttir.

02.04.2019

Ársreikningur 2018

Á fundi sveitarstjórnar þann 14. mars sl. var ársreikningur Dalabyggðar tekinn til fyrri umræðu.   Rekstri er skipt í A og B hluta. Í A hluta er rekstur málaflokka og þjónusta við íbúa sveitarfélagsins sem er fjármögnuð með skatttekjum og þjónustugjöldum. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki og rekstrareiningar sem eru í eigu sveitarfélagsins og eru fjármagnaðar með þjónustutekjum t.d.
Skoða betur
02.04.2019

Hundahald í Búðardal

Hundahald í Búðardal sætir nokkrum takmörkunum samanber samþykkt um hundahald í Dalabyggð nr. 26/2003. Hundeigendum í Búðardal ber að skrá hunda sína og greiða 8.300 kr. í skráningargjald. Eftir það er 6.500 kr. árgjald með gjalddaga 1. apríl og eindaga 1. maí.   Eigendum hunda í Búðardal ber skylda til að skrá hunda sína á skrifstofu Dalabyggðar og greiða skráningargjald. Í
Skoða betur
02.04.2019

Leir-Gugga

Guðbjörg Björnsdóttir leirlistarkona mun segja frá rannsóknum sínum og tilraunum með Dalaleirinn laugardaginn 6. apríl 2019 kl. 15 á Byggðasafni Dalamanna. Þá mun hún segja frá ferð sinni til Þýskalands sumarið 2017 og starfsnámi í postulínsverksmiðjunni Wagner & Apel í Lippelsdorf. Allir eru velkomnir á sögustund á Byggðasafni Dalamanna á meðan húsrúm leyfir.
Skoða betur
20.03.2019

Kótilettukvöld 2019

Lionsklúbbur Búðardals heldur kótilettukvöld í Dalabúð laugardaginn 23. mars kl. 20.   Á boðstólum eru lambakótilettur með tilheyrandi meðlæti. Miðinn gildir sem happdrættismiði og auk þess verður hægt að kaupa miða á skemmtunina. Allir sem að skemmtuninni koma gefa vinnu sina og ágóði rennur til styrktar unglingadeildarinnar Óskars, skátafélagsins Stíganda og verkefnasjóðs Lionsklúbbs Búðardals. Kristján og Lolli munu sjá um
Skoða betur
17.03.2019

Breyttur opnunar- og símatími

Opnunartími og símatími á skrifstofu Dalabyggðar verður kl. 9-13 alla virka daga frá og með 18. mars 2019.
Skoða betur
15.03.2019

Félagsvist í Árbliki

Kvenfélagið Fjóla heldur sitt þriðja og síðasta kvöld í félagsvist kl. 20 föstudaginn 15. mars 2019 í Árbliki.   Það kostar 1.000 kr. að taka þátt fyrir fullorðna, en frítt fyrir börn 14 ára og yngri. Veitt verða kvöldverðlaun, heildarverðlaun og að sjálfsögðu kaffiveitingar.
Skoða betur
15.03.2019

Þrígangur og slaktaumur

Keppt verður í þrígangi og slaktaumatölti í Nesoddahöllinni kl. 14 sunnudaginn 24. mars. Allar nánari upplýsingar um dagskrá, keppnisfyrirkomulag og um skráningar eru á heimasíðu hestamannafélagsins Glaðs.
Skoða betur
12.03.2019

Aðalfundur Félags eldri borgara 2019

Aðalfundur félags eldri borgara í Dölum og Reykhólasveit verður haldinn fimmtudaginn 14. mars kl. 13:30 í Rauðakrosshúsinu.
Skoða betur
10.03.2019

Opnir fundir Grólindar

Landgræðslan boðar til kynninga- og samráðsfunda um verkefnið Grólind – mat og vöktun á gróður- og jarðvegsauðlindum Íslands á Vesturlandi og Vestfjörðum frá 12. til 16. mars. Fundur verður í Dalabúð þriðjudaginn 12. mars kl. 20.   Á fundunum verður fjallað um aðferðarfræði verkefnisins m.a. ástandsmat, þróun sjálfbærnivísa fyrir landnýtingu, kortlagningu beitilanda, könnun á beitaratferli sauðfjár og samstarf við landnotendur.
Skoða betur
07.03.2019

Örsýning myndmenntanema 2019

Í marsmánuði verður á safninu örsýning myndmenntanema á yngsta stigi og miðstigi Auðarskóla.   Bókasafnið er opið á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 12:30-17:30.   Hægt að skila bókum á opnunartímum stjórnsýsluhússins í söfnunarkassa í anddyri stjórnsýsluhússins
Skoða betur
06.03.2019

Nútímadansverkið Jarðarbúi

Nútímadansverkið Jarðarbúi verður sýnt í Dalabúð sunnudaginn 10. mars kl. 14-16. Aðgangur er ókeypis.   Jarðarbúi er heiti á dansverki eftir danshöfundinn Nate Yaffe í samvinnu við listakonuna Jasa Baka sem sér um myndræna útfærslu og búningahönnun.   Verkið Jarðarbúi er fjörugt nútíma dansverk þar sem samhengið við náttúruöflin og íslenska náttúru er skoðað út frá líkamstjáningu. Ýmsar furðuverur leika
Skoða betur
05.03.2019

Hversdagssögur

Byggðasafn Dalamanna í samvinnu við Sauðafellsbændur verður með sögustund á Sauðafelli (gamla bænum) sunnudaginn 10. mars 2019 kl. 14.   Þar verður sagt frá daglegu lífi og starfi Miðdælinga fyrr á tímum. Allir áhugasamir eru velkomnir á Sauðfell.
Skoða betur
Fréttir.