Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Útboð: Skólaakstur fyrir Auðarskóla Dalabyggð”
15.04.2024

Útboð: Skólaakstur fyrir Auðarskóla Dalabyggð

Ríkiskaup, fyrir hönd sveitarfélagsins Dalabyggð kt. 510694-2019, óska eftir tilboðum í skóla- og tómstundaakstur með grunn- og leikskólanemendur milli Auðarskóla og heimilis að morgni og aftur heim síðdegis alla skóladaga. Útboðið skiptist í 7 leiðir. Allar nánari upplýsingar er að finna í rafrænu útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign. Útboðsgögn afhent: 15.04.2024 kl. 09:00 Skilafrestur 17.05.2024 kl. 12:00 Opnun tilboða: 17.05.2024 kl. 13:00 Leiðbeiningar varðandi
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Kröfulýsingarfresti vegna þjóðlendukrafna frestað fram í september”
10.04.2024

Kröfulýsingarfresti vegna þjóðlendukrafna frestað fram í september

Óbyggðanefnd hefur frestað kröfulýsingum vegna þjóðlendukrafna utan meginlands. Kröfum skal lýst skriflega fyrir 2. september 2024. Kröfulýsingarfrestur var upphaflega veittur til 15. maí 2024 en á nefndarfundi 4. apríl var ákveðið að framlengja hann. Þá hafa verið gerðar leiðréttingar vegna landsvæða utan svæðis 12. Að lokinni gagnaöflun og rannsókn á eignarréttarlegri stöðu svæðanna úrskurðar óbyggðanefnd um framkomnar kröfur.   Leiðréttingar
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Augnlæknir á HVe í Búðardal”
02.04.2024

Augnlæknir á HVe í Búðardal

Guðrún J. Guðmundsdóttir augnlæknir verður til viðtals á Heilsugæslustöðinni í Búðardal fimmtudaginn 2. maí n.k. Tímapantanir eru í síma  432 1450
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Ársskýrsla DalaAuðs 2023 komin út”
02.04.2024

Ársskýrsla DalaAuðs 2023 komin út

Ársskýrsla DalaAuðs er komin út og er nú aðgengileg á vef Byggðastofnunar sem og hér fyrir neðan. Árlega eru haldnir íbúafundir í tengslum við DalaAuð, þar sem lögð eru fram markmið verkefnisins. Í skýrslunni er gerð grein fyrir framgangi verkefnisins árið 2023. Þar er sagt frá þeim verkefnum sem sett hafa verið á dagskrá á íbúafundum, veittum styrkjum úr Frumkvæðissjóði
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Aðalsafnaðarfundur Kvennabrekkusóknar”
02.04.2024

Aðalsafnaðarfundur Kvennabrekkusóknar

Aðalsafnaðarfundur Kvennabrekkusóknar verður haldinn miðvikudaginn 10. apríl kl. 20:00 að Fellsenda 1 Venjuleg aðalfundarstörf – öll velkomin.  – Sóknarnefnd
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Dalabyggð auglýsir eftir tillögu að verki við innkomu í Búðardal”
02.04.2024

Dalabyggð auglýsir eftir tillögu að verki við innkomu í Búðardal

Sveitarfélagið Dalabyggð kallar eftir tillögum að frumhönnun á aðkomutákni sem býður fólk velkomið í þéttbýliskjarnann Búðardal. Um er að ræða verk sem staðsett verður við innkomu í þorpið en eftir er að velja endanlega staðsetningu. Tilgangur með því að auglýsa eftir hönnun er að fá fram tillögu að verki sem best er fallin til framkvæmdar. Það er samstarfshópur Dalabyggðar, Vegagerðarinnar
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Laus störf við Auðarskóla”
27.03.2024

Laus störf við Auðarskóla

Við í Auðarskóla leitum að metnaðarfullum, jákvæðum og skapandi starfsmönnum með þekkingu, reynslu og áhuga á gæða skólastarfi. Auðarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli og er staðsettur í Búðardal sem er eini þéttbýliskjarni sveitarfélagsins. Á næsta skólaári verða 68 nemendur í 1.-10. bekk grunnskólans og um 22 börn í leikskólanum. Tæpur helmingur nemenda grunnskólans stundar tónlistarnám. Einkunnarorð skólans eru
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Gleðilega páska – Opnunartími”
27.03.2024

Gleðilega páska – Opnunartími

Sveitarstjórn Dalabyggðar og starfsfólk óskar ykkur öllum gleðilegra páska!   Við minnum á að skrifstofa Dalabyggðar verður lokuð vegna páskafrís frá og með fimmtudeginum 28. mars og opnar að nýju kl.9:00 þriðjudaginn 2. apríl.     Hér fyrir neðan má finna efni til skemmtunar fyrir börnin yfir páskana: Hugmyndir að páskaföndri Leikur með málshætti Páska-litabók Páskaþrautir og gaman
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Viðbrögð Dalabyggðar vegna fyrirhugaðrar breytingar á póstafgreiðslu í Búðardal”
26.03.2024

Viðbrögð Dalabyggðar vegna fyrirhugaðrar breytingar á póstafgreiðslu í Búðardal

Dalabyggð barst á dögunum bréf frá Byggðastofnun þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðra breytinga á póstþjónustu í Búðardal en skv. erindi Íslandspósts sem fylgdi bréfinu mun pósthúsinu í Búðardal verða lokað frá og með 1. júní nk. Dalabyggð hefur sent umsögn sína til Byggðastofnunar þar sem við hörmum ákvörðun Íslandspósts um lokun starfsstöðvarinnar í Búðardal. Það eru
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Að segja sögur – sagnanámskeið”
25.03.2024

Að segja sögur – sagnanámskeið

Laugardaginn 20. apríl, kl. 13:00-17:00 í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar.   Hæfileikinn til að segja sögur, býr í okkur öllum. Námskeiðinu er ætlað að rækta þennan hæfileika með leiðsögn um aðferðir sagnalistar og þann galdur sem hægt er að skapa með því að segja sögu. Hér blandast saman fróðleikur frá leiðbeinendum og æfingar þátttakenda, sem prófa sig áfram og byggja þannig upp
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Sælingsdalstungu í Dalabyggð”
25.03.2024

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Sælingsdalstungu í Dalabyggð

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi 19. mars 2024 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Sælingsdalstungu skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér sameiningu frístundahúslóða nr. 52-57 í eina 4 ha lóð. Skilmálum um byggingarmagn á öllum frístundahúsalóðum er breytt og gert ráð fyrir breyttum aðkomuvegi inn á svæðið. Tillagan er aðgengileg í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Upplýsinga- og umræðufundir: Framtíðarmöguleikar Breiðafjarðar”
18.03.2024

Upplýsinga- og umræðufundir: Framtíðarmöguleikar Breiðafjarðar

Framtíðarmöguleikar Breiðafjarðar – Leit að jafnvægi milli verndar og nýtingar Heimasíða Breiðafjarðarnefndar Upplýsinga- og umræðufundir verða haldnir á þremur stöðum við Breiðafjörð; Stykkishólmi, Dalabyggð og Barðaströnd. Fundurinn í Dalabyggð verður haldinn mánudaginn 25. mars kl. 17:00 – 19:30 á Dalahóteli, Laugum í Sælingsdal. Ath. að upphaflega var fundurinn auglýstur mánudaginn 18. mars en var frestað vegna veðurs.  Kynnt verður verkefni,
Skoða betur
Fréttir.