Nýjar bækur og listaverk leikskólabarna

DalabyggðFréttir

Nú þegar dag er tekið að stytta og aðventan nálgast hafa Bókatíðindi ratað inn á mörg heimili. Á Héraðsbókasafni Dalasýslu er einmitt að finna úrval bóka og ýmsar nýjar bækur fyrir bæði börn og ungmenni. Má þar nefna m.a. „Lára fer í útilegu“ eftir Birgittu Haukdal, „Salka – Tímaflakkið“ eftir Bjarna Fritzson „HM bókin“ eftir Kevin Pettman, sem fjallar um …

Íbúafundur 17. nóvember 2022 – upptaka

DalabyggðFréttir

Íbúafundur var haldinn í félagsheimilinu Dalabúð, fimmtudaginn 17. nóvember sl. Á dagskrá var kynning á tillögu að fjárhagsáætlun 2023-2026 sem Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Dalabyggðar fór yfir, því næst tók Hrefna B. Jónsdóttir framkvæmdastjóri Sorpurðunar Vesturlands við og fór yfir breytingar varðandi úrgangsmál og að lokum flutti Gísli Einarsson fjölmiðlamaður hugvekju um lífið í samfélagi úti á landi. Sköpuðust góðar …

Samfélagsvegir – opinn fundur 21. nóvember

DalabyggðFréttir

Mánudaginn 21. nóvember n.k. kl.20:00 verður opinn fundur í Árbliki varðandi nýja hugsun í vegagerð, svo kallaða samfélagsvegi. Frummælendur: Haraldur Benediktsson, alþingismaður Gísli Gíslason, fv. stjórnarformaður Spalar Ómar Tryggvason, Summu – fjárfestingasjóðs Fundarstjóri: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri

Slökunarnámskeið í boði Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands

DalabyggðFréttir

Næstu vikurnar býður Símenntunarmiðstöð Vesturlands upp á slökunarnámskeið. Kennt verður í fjögur skipti, í Dalabúð: Miðvikudagur 16. nóv. kl. 17:00-18:30 Föstudagur 18. nóv. kl. 14:00-15:30 Miðvikudagur 23. nóv. kl. 17:00-18:30 Föstudagur 25. nóv. kl. 14:00-15:30 Námskeiðið er ókeypis fyrir þátttakendur en nauðsynlegt er að skrá sig. Kennari er Elín Matthildur Kristinsdóttir. Skráning fer fram á netfanginu ivar.orn73@gmail.com og í síma 6952579.

Kynning á Uppbyggingarsjóði Vesturlands 14. nóvember

DalabyggðFréttir

Kynning á Facebook Live á Uppbyggingarsjóði Vesturlands þar sem farið verður yfir úthlutunarreglur, umsóknarferlið, spurningum svarað og fleira. Opið er fyrir umsóknir og rennur fresturinn út 17. nóvember – sjá nánar hér: Uppbyggingarsjóður Vesturlands haust 2022 Allir velkomnir ! VIÐBURÐUR Á FACEBOOK

Íbúafundur 17. nóvember 2022

DalabyggðFréttir

Íbúafundur verður haldinn fimmtudaginn 17. nóvember 2022 kl. 20:00 – 22:00 í Félagsheimilinu Dalabúð Dagskrá: Kynning: Tillaga að fjárhagsáætlun 2023 – 2026 Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri Dalabyggðar Kynning: Hvað er efst á baugi í sorpmálum? Hrefna B. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Sorpurðunar Vesturlands Erindi: Það er svalt að vera sveitó! Gísli Einarsson, fjölmiðlamaður Fundarstjóri verður Sveinn Gestsson. Íbúar Dalabyggðar eru hvattir til …

Straumleysi á Saurbæjarlínu 10.11.2022

DalabyggðFréttir

Rafmagnslaust verður út frá Glerárskógum, hluta af Hvammssveit, Fellströnd, Skarðsströnd, Saurbær inn að Ólafsdal 10.11.2022 frá kl 12:00 til kl 17:00 vegna vinnu við dreifikerfi Rarik. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9000 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof

Uppbyggingarsjóður Vesturlands – opið fyrir umsóknir

DalabyggðFréttir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands. Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember 2022, úthlutun fer fram í janúar 2023. Kynningarfundur verður 14. nóvember n.k. kl.17:00-18:00, sjá hér: Kynningarfundur Uppbyggingarsjóðs Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum …

Fyrsta úthlutunarhátíð DalaAuðs – 21 verkefni hlutu styrk

DalabyggðFréttir

Föstudaginn 4. nóvember 2022 var úthlutunarhátíð DalaAuðs haldin að Laugum í Sælingsdal. DalaAuður er verkefni undir hatti brothættra byggða og styrkt af Byggðastofnun. Um er að ræða fyrstu úthlutun úr frumkvæðissjóði DalaAuðs þar sem til úthlutunar voru 12.250.000 kr.- Í sjóðinn bárust 30 umsóknir og voru 21 verkefni af þeim sem fengu styrk að þessu sinni.  Úthlutunarhátíðin var vel skipulögð, …