20.12.2018Félagsvist í Tjarnarlundi Félagsvist verður spiluð í Tjarnarlundi laugardagskvöldið 29. desember kl. 20. Kostar 1.200 kr og veitingar í boði.Skoða betur
19.12.2018Tilraunaverkefni í uppbyggingu húsnæðis Dalabyggð hefur verið valin til þátttöku í tilraunaverkefni í uppbyggingu húsnæðis á landsbyggðinni. Ásmundur Einar Daðason, félagsmálaráðherra, og fulltrúar Íbúðalánasjóðs kynntu á fundi í Leifsbúð þann 12. desember fyrstu sjö sveitarfélög sem verða til að taka þátt í tilraunaverkefni um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni. Dalabyggð er eitt þeirra, hin eru Snæfellsbær, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Norðurþing, Hörgársveit, Vesturbyggð og Seyðisfjarðarkaupstaður. ÍbúðalánasjóðurSkoða betur
11.12.2018Uppbyggingasjóður Vesturlands Uppbyggingasjóður Vesturlands auglýsir eftir umsóknum til atvinnuþróunar-, nýsköpunar- og menningarstyrkja ásamt stofn- og rekstrarstyrkja til menningarverkefna. Reglur, viðmið og umsóknareyðublöð varðandi styrkveitingar er að finna á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (ssv.is). Nánari upplýsingar í síma 433 2310 eða senda fyrirspurnir á netfangið uppbyggingarsjodur @ssv.is Frestur til að skila inn umsóknum rennur út á miðnætti 20. janúar 2019 Uppbyggingasjóður VesturlandsSkoða betur
10.12.2018Sveitarstjórn Dalabyggðar 169. fundur 169. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 13. desember 2018 og hefst kl. 16. Dagskrá Almenn mál 1. 1810003 – Fjárhagsáætlun 2019 – 2022, framhald annarrar umræðu. Úr fundargerð 215. fundar byggðarráðs frá 06.12.2018: Fjárhagsáætlun 2019 – 2022 – 1810003 Breytingartillögur við fjárhagsáætlun vegna íbúaþings. Gjaldskrártillögur. Eftirfarandi breytingartillögur samþykktar: Sjálfboðaverkefni verði kr. 1.200.000 Skipulags- og byggingarmál hækka um kr. 1.800.000 BrunamálSkoða betur
03.12.2018Viðvera atvinnuráðgjafa Viðvera Ólafur Sveinsson atvinnuráðgjafi er vera átti þriðjudaginn 4. desember frestast til miðvikudagsins 5. desember kl. 13-15.Skoða betur
02.12.2018Matthías á Orrahóli og Á mörkum mennskunnar Sunnudaginn 9. desember kl. 14 verður tvöföld sögustund hjá Byggðasafni Dalamanna og að þessu sinni í félagsheimilinu á Staðarfelli. Annars vegar mun Guðfinna S. Ragnarsdóttir segja frá Matthíasi Ólafssyni bónda og sergeantmajor á Orrahóli. Hins vegar mun Jón Jónsson þjóðfræðingur kynna nýútkomna bók sína „Á mörkum mennskunnar“. Matthías á Orrahóli – Guðfinna S. Ragnarsdóttir Matthías Ólafsson bóndi á OrrahóliSkoða betur
28.11.2018Kaffihúsakvöldi Auðarskóla frestað Kaffihúsakvöldi Auðarskóla sem vera átti fimmtudaginn 29. nóvember hefur verið frestað til mánudagsins 3. desember vegna veðurs.Skoða betur
28.11.2018Viðtalstímar sveitarstjórnarfulltrúa Í desember verða sveitarstjórnarfulltrúarnir Eyjólfur Ingvi og Einar Jón til viðtals í stjórnsýsluhúsinu á eftirtöldum tímum: Eyjólfur Ingvi Bjarnason, mánudaginn 3. desember kl. 10:30 til 12:00. Einar Jón Geirsson, þriðjudaginn 4. desember kl. 15:00 – 16:30.Skoða betur
28.11.2018Jólatré Dalabyggðar Eins og undanfarin ár verður jólatré Dalabyggðar komið fyrir við Auðarskóla og kveikt verður á ljósunum laugardaginn 1. desember kl. 16. Að venju verður dansað í kringum tréð og sungin jólalög, kannski með aðstoð jólasveina. Á eftir verður boðið upp á kaffi, súkkulaði og piparkökur í Dalabúð.Skoða betur
22.11.2018Auðarskóli – tónlistarkennari Við Auðarskóla er laus 70% staða tónlistarkennara við tónlistardeild skólans frá og með 1. janúar 2019. Mikilvægt er að umsækjendur búi að færni í samskiptum, frumkvæði í starfi, sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum og góðri íslenskukunnáttu. Umsóknir um starfið berist á netfangið hlodver@audarskoli.is. Í umsókninni skal fylgja ferilskrá og ábendingar um meðmælendur. Umsóknarfrestur er til 6. desember 2018. Upplýsingar um starfiðSkoða betur
22.11.2018Sveitarstjórn Dalabyggðar – 168. fundur 168. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 26. nóvember 2018 og hefst kl. 16. Dagskrá Almenn mál 1. Fjárhagsáætlun 2019 – 2022, önnur umræða. Breytingatilögur byggðarráðs við fjárhagsáætlun lagðar fram. Úr fundargerð 213. fundar byggðarráðs 20. nóvember 2018: Fjárhagsáætlun 2019 – 2022 Tillaga um álagningarhlutfall útsvars og fasteignagjalda samþykkt og verður lögð fyrir sveitarstjórn. Breytingartillögur viðSkoða betur
22.11.2018Sveitarstjórnarfundi frestað Sveitarstjórnarfundi sem var boðaður 22. nóvember er frestað til mánudagsins 26. nóvember. Þau mistök urðu að þegar sveitarstjórnarfundur sem vera átti í dag, 22. nóvember, var boðaður með tilskyldum fyrirvara, láðist að setja auglýsingu um fundinn inn á heimasíðu Dalabyggðar. Vegna þessa verður fundi sveitarstjórnar frestað um fjóra sólarhringa til þess að auglýsing um hann nái að birtast með nægum fyrirvara.Skoða betur