Fréttir.

12.07.2018

Umsóknir um starf sveitarstjóra

Þrettán umsóknir bárust um stöðu sveitarstjóra Dalabyggðar. Starfið var auglýst laust til umsóknar og rann umsóknarfrestur út 9. júlí. Átta karlar og fimm konur sækjast eftir starfinu. Farið hefur verið yfir umsóknirnar og ákveðið hvaða umsækjendur verða kallaðir í viðtöl. Hagvangur annast ráðningarferlið í samstarfi við sveitarstjórn. Eftirtaldir sóttu um stöðuna í stafrófsröð Ernir Kárason, verkefnisstjóri Gunnólfur Lárusson, rekstrar- og verkefnisstjóri
Skoða betur
12.07.2018

Heim í Búðardal

Bæjarhátíð verður haldin í Búðardal 13. – 15. júlí. Dagskráin er birt hér með fyrirvara um breytingar. Föstudagurinn 13. júlí Kl. 17–19. Metamót UDN í tilefni aldarafmælis á íþróttavellinum í Búðardal Kl. 18–20. Kjötsúpurölt um Búðardal í Bakkahvammi 4, Brekkuhvammi 8 og Lækjarhvammi 4 Kl. 21–23. Opið hús í Sæfrosti Laugardagurinn 14. júlí Miðbraut verður lokuð frá Gunnarsbraut að stjórnsýsluhúsi.
Skoða betur
12.07.2018

Setjum Dalina í hátíðarbúning

Skreytingar á bæjarhátíðinni Heim í Búðardal verða eins og verið hefur. Rauður og blár norðan megin í Búðardal og í öllu sveitarfélaginu þar í framhaldið og grænn og appelsínugulur í suðurhluta Búðardals og Suðurdölum. Nú er um að gera að finna upp á einhverju sniðugu og skemmtilegu, sem lífgar upp á Dalina í tilefni hátíðahaldanna.
Skoða betur
09.07.2018

Blómmóðir besta

Helga Kress, prófessor emeritus við Háskóla Íslands flytur erindið „Blómmóðir besta“ á Nýp á Skarðsströnd laugardaginn 14. júlí kl. 15. Konan í lífi og ljóði Jóns Thoroddsen: Kristín Ólína Thoroddsen, fædd Sívertsen (1833-1879); saga sögð í bréfum, að Jóni gengnum.   Í erindi sínu tengir Helga kvenlýsingar í ljóðum og sögum Jóns Thoroddsen við konurnar í lífi hans. Helga hefur
Skoða betur
07.07.2018

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 163. fundur

163. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 12. júlí 2018 og hefst kl. 16:00.   Dagskrá Almenn mál – umsagnir og vísanir 1. Sala eigna – Laugar í Sælingsdal 2. Fyrirspurn um leigulóð 3. Stofngjald ljósleiðara að Breiðabólsstað í Sökkólsdal 4. Íbúakosning, undirskriftalisti, kosningar 5. Ráðning sveitarstjóra 6. Hljóð- og myndupptökur á sveitarstjórnarfundum 7. Íbúaþing 2018 8. Skógræktaráform í Ólafsdal 137878 9.
Skoða betur
04.07.2018

Sögurölt í Kumbaravog

Miðvikudaginn 11. júlí kl. 19 verður þriðja sögurölt Byggðasafns Dalamanna og Sauðfjárseturs á Ströndum í sumar. Upphafsstaður er við Klofning. Farið verður upp á Klofning að hringsjá sem þar er og notið útsýnisins. Spjallað verður m.a. um búsetu, strauma, siglingaleiðir og annað er kemur upp í hugann varðandi eyjarnar fyrir mynni Hvammsfjarðar. Þá verður rölt niður í Kumbaravog í landi
Skoða betur
04.07.2018

Tónlist og ljóð á Laugum í Sælingsdal

Þriðjudagskvöldið 10. júlí kl. 20:30 verða tónleikar og ljóðaupplestur á Hótel Eddu í Sælingsdal. Íslenskt/þýskt tríó spilar latíntónlist og jazz, það skipa kontrabassaleikarinn og heimamaðurinn Tómas R. Einarsson, gítarleikarinn Ómar Guðjónsson og trommuleikarinn Tommy Baldu. Skáldið Kristín Svava Tómasdóttir les úr síðustu ljóðabók sinni, Stormviðvörun (2015), en hún kom út í enskri þýðingu í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári og
Skoða betur
04.07.2018

Sýning á Nýp á Skarðsströnd

Í vetur hafa staðið yfir framkvæmdir að Nýp á Skarðsströnd. Í viðbyggingu við íbúðarhúsið, þar sem áður var fjós, fjárhús og hesthús hafa arkítektarnir í Studio Bua hannað gesta- og sýningarými. Sunnudaginn 8. júlí kl. 15-18 verður opnuð á Nýp sýning sem sýnir hönnun endurbyggingarinnar í teikningum, ljósmyndum og módelum, ásamt nokkrum eldri ljósmyndum. Verkefnið var framkvæmt af smiðum, iðnaðarmönnum
Skoða betur
02.07.2018

Héraðsbókasafn – sumarlokun

Héraðsbókasafn Dalasýslu verður lokað frá og með 28. júní til og með 31. júlí vegna sumarleyfa.
Skoða betur
28.06.2018

Gildistaka svæðisskipulags

Sameiginleg áætlun Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar um byggðarþróun m.t.t. landbúnaðar, sjávarnytja og ferðaþjónustu, hefur tekið gildi.  Skipulagsstofnun staðfesti svæðisskipulagsáætlunina þann 5. júní  sl. í samræmi við skipulagslög og auglýsing um gildistökuna var birt í Stjórnartíðindum 19. júní sl. Í svæðisskipulaginu er sett  fram  framtíðarsýn fyrir sveitarfélögin þrjú sem lýsir þeim árangri sem þau vilja ná á næstu 15 árum. Einnig eru
Skoða betur
28.06.2018

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands

Móttaka heyrnarfræðings Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands (HTÍ)  verður við heilsugæslustöðina í Búðardal mánudaginn 16. júlí. Heyrnarmælingar, ráðgjöf um heyrnartæki, aðstoð og stilling. Bókanir eru í síma 581 3855. Heyrnar- og talmeinastöð Íslands
Skoða betur
26.06.2018

Sögurölt við Steingrímsfjörð

Farið verður í sögurölt við Steingrímsfjörð á Ströndum næstkomandi mánudag, þann 2. júlí kl. 19.30 og lagt af stað frá Húsavíkurkleif, rétt sunnan við bæinn Húsavík. Gangan er skipulögð í samstarfi Byggðasafns Dalamanna, Sauðfjárseturs á Ströndum, Rannsóknaseturs HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofu og Náttúrubarnaskólans. Söfnin hafa tekið höndum saman um vikulegt sögurölt í Dölum og á Ströndum í sumar í
Skoða betur
Fréttir.