29.01.2016
Lagning ljósleiðara
Dalabyggð áformar að standa fyrir lagningu ljósleiðarnets innan sveitarfélagsins. Um er að ræða jarðstrengi sem eftir atvikum verða lagðir í pípur eða plægðir beint í jörð, að mestu meðfram vegum og heimreiðum. Einnig þarf að setja upp tengiskápa, tengibrunna og hliðstæðan búnað til samtenginga jarðstrengjanna. Ein af forsendum fyrir þessu verki er að fyrir liggi samþykki landeigenda fyrir lagningu jarðstrengjanna
Skoða betur