Byggðasafn – Dalamenn í Vesturheimi

DalabyggðFréttir

Þriðja sögustund vetrarins verður sunnudaginn 12. október kl. 14. Þar verður sagt frá lífi og örlögum nokkurra Dalamanna í Vesturheimi. Þeir sem hafa áhuga á að fara í sund samhliða sögustund hafi samband við Gunnar Má með góðum fyrirvara á netfangið gunnarmar@umfi.is eða síma 777 0295 / 434 1465. Allir velkomnir. Aðgangseyrir er 500 kr. Byggðasafn Dalamanna – sögustund fb

Viðvera atvinnufulltrúa

DalabyggðFréttir

Atvinnuráðgjafa SSV verður í Dölunum þriðjudaginn 7. október kl. 13-15. Íbúum Dalabyggðar er hins vegar alltaf velkomið að hafa samband Atvinnuráðgjöf SSV utan þess tíma og ræða málin. Ólafur Sveinsson mun sjá um viðveru í Búðardal líkt og undanfarin ár og fyrirkomulagið svipað. Viðverudagar í vetur verða 7. október, 3. nóvember, 2. desember, 6. janúar, 3. febrúar, 3. mars, 9. …

Auðarskóli – laust starf

DalabyggðFréttir

Vegna forfalla er nú laus 100% staða starfsmanns við umönnun barna í leikskóla Auðarskóla. Umsækjandi þarf að hafa hlýtt viðmót, hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum og vera áhugasamur um skólastarf og starfsþróun. Vinnutími er 8.00 – 16.00 og 09.00 – 17.00 (mismunandi eftir vikum). Launakjör fara eftir kjarasamningum SDS við Samband íslenskra sveitarfélaga. Starfið hentar jafnt körlum sem konum. …

Réttarfagnaður

DalabyggðFréttir

,,Réttarfagnaður“ verður í Dalakoti Búðardal laugardaginn 27. september og hefst kl 23. Heimahljómsveitin B4 skemmtir. Aðgangseyrir er 1,500 krónur og greiðist við inngang. Engin posi er við innganginn svo hafið með ykkur aur. Aldurstakmark er 18 ár.

Inflúensubólusetning og augnlæknir

DalabyggðFréttir

Bóluefni gegn árlegri inflúensu er komið og bólusetning er hafin á heilsugæslustöðvunum í Búðardal og á Reykhólum. Jafnframt er minnt á bólusetningu gegn lungnabólgubakteríu sem ráðlögð er áhættuhópum á ákveðnu árabili. Guðrún Guðmundsdóttir augnlæknir verður með stofu á heilsugæslunni í Búðardal föstudaginn 3. október n.k. Tímapantanir eru í síma 432 1450. Starfsmenn HVE-Búðardal/Reykhólum

Ný stjórn SSV

DalabyggðFréttir

Á framhaldsaðalfundi SSV fimmtudaginn 18. september 2014 var kosin ný stjórn og Ingveldur Guðmundsdóttir formaður samtakanna. Í 12 mann stjórn SSV voru kosin Ingveldur Guðmundsdóttir formaður, Valgarður Lyngdal Jónsson, Rakel Óskarsdóttir, Bjarki Þorsteinsson, Guðveig Eyglóardóttir, Eggert Kjartansson, Eyþór Garðarsson, Sif Matthíasdóttir, Hjördís Stefánsdóttir, Árni Hjörleifsson, Kristín Björg Árnadóttir og Hafdís Bjarnadóttir 19. september 2014 09:46 – Ingveldur Guðmundsdóttir formaður Ingveldur …

Byggðasafn Dalamanna – sögustund

DalabyggðFréttir

Önnur sögustund vetrarins verður sunnudaginn 28. september kl. 16 á Laugum. Aðgangseyrir er 500 kr. Að þessu sinni verða sagðar sannar og lognar sögur af Abraham nokkrum úr Haukadalnum. Hann var uppi á 18. öld og ef allar sögur af eru sannar var hann sauðaþjófur, stigamaður, útilegumaður, draugur, hreppstjóri og sitthvað fleira tók hann sér fyrir hendur. Byggðasafn Dalamanna – …

Íbúafundur – Umferðaröryggi í Búðardal

DalabyggðFréttir

Íbúafundur um umferðaröryggi í Búðardal verður haldinn í Dalabúð þriðjudaginn 23. september kl. 20. Dagskrá 1. Umferðaröryggi í BúðardalErna B. Hreinsdóttir verkefnastjóri í hönnunardeild Vegagerðarinnar kynnir skýrslu sína. 2.Umræður og fyrirspurnir Áhugasamir eru hvattir til að mæta. Sveitarstjórn Dalabyggðar

Skátastarf – útivistarfundir

DalabyggðFréttir

Verið er að ganga frá dagskrá skátastarfsins og verður hún send foreldrum í vikunni. Mikilvægt er að skrá börnin sem fyrst í félagatalið til að hægt sé að koma upplýsingum með tölvupósti til skátanna. Fyrsti útivistafundur fálka- og dróttskáta verður á Laugum föstudaginn 19. september strax eftir skóla. Skátarnir eiga að mæta í útivistarfötum og hafa föt með til skiptanna. …

Réttaball í Tjarnarlundi

DalabyggðFréttir

Umf. Stjarnan stendur fyrir réttaballi í Tjarnarlundi í Saurbæ laugardagskvöldið 20. september. Hljómsveitin Dixon mun leika fyrir dansi. Húsið opnar kl. 23 og aðgangseyrir er 3.000 kr. Aldurstakmark er 16 ár. Réttarball – fb