26.05.2023
Sumarbingó Héraðsbókasafns Dalasýslu 2023 fyrir 5-12 ára
Vegna frábærra undirtekta verður sumarbingó Héraðsbókasafns Dalasýslu endurtekið sumarið 2023. Bingóið er lestrarátak Dalabyggðar yfir sumartímann fyrir börn á aldrinum 5-12 ára. Markmið með lestrarátaki yfir sumartímann er að hvert barn lesi í sumar, viðhaldi leshraða, lesskilningi og njóti lestursins. Lestur ýtir undir betri og fjölbreyttari orðaforða, styður við þroska barna og eykur þekkingu þeirra á svo margan hátt. Skólar
Skoða betur









