112 – dagurinn

DalabyggðFréttir

Allir eru velkomnir í Björgunarsveitarhúsið laugardaginn 11. febrúar, kl. 13-15. Þar verður kynnt starfsemi sjúkraflutninga, slökkviliðs og björgunarsveitar. Þar geta gestir rætt við starfsfólk /sjálfboðaliða, skoðað margvíslegan búnað, fengið sér kaffi og spjallað.
112-dagurinn verður haldinn um allt land laugardaginn 11. febrúar. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. Að þessu sinni er áhersla lögð á að hvetja fólk til að hika ekki heldur hringja í 112 ef það telur sig þurfa á aðstoð að halda – til öryggis.
112-dagurinn er samstarfsverkefni stofnana og félagasamtaka sem annast margvíslega neyðarþjónustu, almannavarnir og barnavernd í landinu: Þau eru: 112, Barnaverndarstofa, Embætti landlæknis, Isavia, Landhelgisgæslan, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og samstarfsaðilar um allt land.
Björgunarsveitin Ósk
Slökkvilið Dalabyggðar
Sjúkraflutningamenn
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei