Atvinnuráðgjafi SSV

DalabyggðFréttir

Ólafur Sveinsson atvinnuráðgjafi SSV verður með viðveru í Búðardal í 4. nóvember, 3. desember, 7. janúar, 4. febrúar, 4. mars, 1. apríl og 6. maí.
Auk þess má alltaf panta heimsókn frá atvinnuráðgjafa utan auglýsts viðverutíma. Síminn á skrifstofu er 433 2310.
Hlutverk atvinnuráðgjafa eru að vera einstaklingum, fyrirtækjum og sveitarstjórnum til aðstoðar á sviði atvinnumála.
Verkefni þróunar- og ráðgjafadeildar SSV á sviði aðstoðar við ofangreinda aðila geta verið margvísleg. Aðstoð við að greina vandamál, leiðbeiningar um hvar er hægt að fá aðstoð, bæði fjárhagslega og tæknilega frá stoðkerfum atvinnulífsins. Aðstoð við gerð umsókna til sjóða og rekstrar- og kostnaðaráætlana. Aðstoð við markaðsmál, upplýsingagjöf, fundir o.fl.
SSV – þróun- og ráðgjöf, aðstoðar einstaklinga til sjálfshjálpar.Það þýðir að nauðsynlegt er að þeir sem eftir aðstoð leita komi einnig til með að vinna að framgangi hugmynda sinna.

SSV – Þróun og ráðgjöf

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei