Auðarskóli – kennarastöður

DalabyggðFréttir

Auðarskóli óskar eftir að ráða í tvær stöður kennara fyrir skólaárið 2017-2018. Um er að ræða 77% stöðu á unglingastigi og 100% stöðu á miðstigi.
Kennsla á unglingastigi er í smíðum, ensku og dönsku.
Umsjónarkennsla á miðstigi er í stærðfræði, upplýsingatækni og náttúrufræði.
Mikilvægt er að umsækjendur búi að færni í samskiptum, frumkvæði í starfi, sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum og góðri íslenskukunnátta
Einnig þurfa umsækjendur að vera tilbúnir að vinna eftir stefnu Auðarskóla í teymiskennslu.
Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf til þess að kenna í grunnskóla.
Umsóknir um starfið berist á netfangið hlodver@audarskoli.is. Með umsókninni þurfa að fylgja ferilskrá og ábendingar um meðmælendur. Umsóknarfrestur er til 12. maí.
Upplýsingar um starfið veitir Hlöðver Ingi skólastjóri í síma 430 4757.

Auðarskóli

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei