Dalabyggð auglýsir starf bókavarðar Héraðsbókasafns Dalasýslu laust til umsóknar.
Leitað er að bókasafns- og upplýsingafræðingi en til greina kemur að ráða ófaglærðan starfsmann. Starfshlutfall er 50%.
Helstu verkefni
Bókavörður sér um innkaup bóka, skráir í tölvukerfi, afgreiðir bækur og önnur gögn, raðar í hillur, merkir og plastar bækur, leiðbeinir viðskiptavinum um safnkost og aðstoðar við millisafnalán.
Hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Áhugi og þekking á bókmenntum og útgáfu.
- Góð framkoma og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Framsýni og metnaður í starfi.
· Almenn tölvukunnátta.
Gert er ráð fyrir að starfsmaðurinn komi til með að búa í Dalabyggð.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og SDS eða viðeigandi fagfélags.
Umsókn skal skila til skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal.
Fyrirspurnir má senda á netfangið sveitarstjori@dalir.is.
Umsóknarfrestur er til og með 9. mars nk.