Íbúðir til leigu fyrir eldri borgara og lífeyrisþega

DalabyggðFréttir

Tvær íbúðir að Gunnarsbraut 11a og 11b í Búðardal eru lausar til leigu frá 1. apríl 2018.  Hvor íbúð er 81 m2.  Mánaðarleg húsaleiga er nú 84.997 kr. og tekur hún breytingum samkvæmt vísitölu neysluverðs til verðtryggingar í byrjun hvers árs.

 

Umsóknareyðublöð eru á vef Dalabyggðar og eru einnig fáanleg á skrifstofu. Umsóknum skal skila á skrifstofu Dalabyggðar fyrir 9. mars 2018.  Eldri umsóknir skulu endurnýjaðar.

Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 430 4700 eða með tölvupósti á netfangið sveitarstjori@dalir.is.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei