Bókun byggðarráðs um tekjustofna

DalabyggðFréttir

Á fundi byggðarráðs Dalabyggðar þann 11. nóvember sl. var eftirfarandi bókun lögð fram:

Byggðarráð Dalabyggðar lýsir yfir undrun og vonbrigðum með einhliða ákvörðun ríkisins um að lækka fasteignaskatt af opinberu húsnæði í eigu ríkisins úr 1,32% í 0,88% af fasteignamati. Tillaga um þetta var lögð fram á Alþingi í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2009.

Þann 2. apríl sl. var undirritaður nýr samstarfssáttmáli á milli ríkis og sveitarfélaga sem átti að tryggja að einhliða ákvarðarnir sem þessi heyrðu sögunni til.

Dalabyggð skorar á þingmenn að samþykkja ekki framkomnar tillögur um lækkun fasteignaskatts á húsnæði í eigu ríkisins. Skerðing tekjustofna sveitarfélaganna er vanhugsuð aðferð til sparnaðar enda eru sveitarfélögin hornsteinn þjónustu við íbúana.

Við núverandi aðstæður ætti þvert á móti að efla tekjustofna sveitarfélaganna þar sem þau eru ein mikilvægasta stoðin við uppbygginguna sem framundan er.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei