DalaAuður – úthlutun 2024

DalabyggðFréttir

Miðvikudaginn 17. apríl var úthlutað úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs. Úthlutunarhátíðin var haldin í Árbliki í Dalabyggð.

DalaAuður er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Dalabyggðar og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og er eitt af verkefnum undir hatti brothættra byggða. Þetta er þriðja úthlutun úr Frumkvæðissjóði Dalauðs.

Frumkvæðissjóður DalaAuðs styrkir bæði samfélagseflandi verkefni og nýsköpun í Dalabyggð. Frestur til að sækja um í sjóðinn rann út 29. febrúar 2024 en alls bárust 21 umsókn í ár. Til úthlutunar voru 18.375.000 kr og er það töluverð hækkun frá síðasta ári en þá voru rúmar 12 milljónir til úthlutunar.

Fjölbreytt flóra verkefna fengu styrk að þessu sinni og er bæði um að ræða samfélagsverkefni og atvinnuskapandi verkefni. Það verður spennandi að fylgjast með verkefnunum glæðast lífi næsta árið.

Eftirtalin verkefni fengu styrk úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs árið 2024:

 

Er líða fer að jólum

  • Alexandra Rut Jónsdóttir
  • Úthlutað: 300.000

 

Leifur árið 970

  • Rain Adriann Mason
  • Úthlutað: 300.000

 

Vetrarstarf 2024-2025

  • Sögufélag Dalamanna og Kruss ehf
  • Úthlutað: 310.000

 

Hljómbrot

  • Sigurbjörg Kristínardóttir og Kristín Guðrún Ólafsdóttir
  • Úthlutað: 310.000 

 

Tindar og Ránargil – stikun og vegvísir

  • Jóhanna Sigrún Árnadóttir og Ingibjörg Jóhannsdóttir
  • Úthlutað: 465.000.-

 

Fjársjóðir Fellsstrandar

  • La Dolce Vita ehf
  • Úthlutað: 600.000   

 

Listviðburðir í Dalíu

  • D9 ehf
  • Úthlutað: 600.000

 

Hvað er að gerast undir yfirborðinu

  • Hvammsskel ehf
  • Úthlutað: 630.000

 

Matur er mannsins megin

  • Jón Egill Jóhannsson
  • Úthlutað: 750.000

 

Hátæknirækt

  • Skoravík ehf
  • Úthlutað: 900.000

 

Aðgengi skóga í Dalabyggð

  • Skógræktarfélag Dalasýslu
  • Úthlutað: 1.000.000

 

Uppsetning á leikverki

  • Leikklúbbur Laxdæla
  • Úthlutað: 1.000.000

 

Fræhöll í Búðardal

  • Dalirnir heilla ehf
  • Úthlutað: 1.000.000

 

Markaðssetning á Urði Ullarvinnslu

  • Rauðbarði ehf
  • Úthlutað: 1.410.000

 

Fagradals – afurðir

  • Halla Sigríður Hrefnu Steinólfsdóttir
  • Úthlutað: 1.800.000

 

Dagverðarneskirkja – áfangastaður utan alfaraleiðar

  • Bára Sigurðardóttir 
  • Úthlutað: 2.200.000

 

Dalahvítlaukur

  • Svarthamar Vestur ehf
  • Úthlutað: 2.300.000

 

Jólasveinarnir eru úr Dölunum

  • Kruss ehf
  • Úthlutað: 2.500.000
„Þrír styrkþegar kynntu verkefnin sín en það voru þau Ingibjörg Þóranna Steinudóttir sem kynnti verkefnið Urður Ullarvinnsla, Þórunn Ólafsdóttir sem kynnti verkefnið Dalahvítlauk og Baldur Þórir Gíslason sem kynnti verkefnið Hvammsskel sem vinnur að tilraunarækt á kræklingi. Hér sýnir Baldur gestum úthlutunarhátíðarinnar sýnishorn frá ræktuninni.“

Þrír styrkþegar kynntu verkefnin sín en það voru þau Ingibjörg Þóranna Steinudóttir sem kynnti verkefnið Urður Ullarvinnsla, Þórunn Ólafsdóttir sem kynnti verkefnið Dalahvítlauk og Baldur Þórir Gíslason sem kynnti verkefnið Hvammsskel sem vinnur að tilraunarækt á kræklingi. Hér sýnir Baldur gestum úthlutunarhátíðarinnar sýnishorn frá ræktuninni.

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei