Endurvinnslukort Dalabyggðar

DalabyggðFréttir

Dalabyggð gerði fyrir nokkru samning við Náttúran.is um gerð endurvinnslukorts á vef Dalabyggðar. Er það nú komið á vefinn.
Tilgangur endurvinnslukortsins er að:
· fræða almenning um endurvinnslu
· hvetja fólk til að minnka magn óflokkaðs sorps í heimilistunnum
· gefa yfirlit um hvar á landinu er tekið við hverjum endurvinnsluflokki.
Endurvinnslukort sveitarfélaganna fela m.a. í sér eftirfarandi þjónustu:
• skilgreiningu á endurvinnslumöguleikum og sorpþjónustu svæðisins. Þ.e. sorptunnum, lúgum, mótttökustöðvum og endurvinnsluflokkum
• sorphirðudagatal tengt heimilisfangi persónu eða fyrirtækis. Það vísar síðan á bestu leiðina að næstu móttökustöð og viðvaranir varðandi veður á leiðinni
• tengingu við ítarefni á endurvinnslukortinu yfir allt landið.
• efni er bæði á íslensku og ensku.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei