Grassláttur 2023-2025 – útboð

Kristján IngiFréttir

Dalabyggð óskar eftir tilboðum í grasslátt og hirðu á grasblettum í eigu sveitarfélagsins í Búðardal og við Tjarnarlund. Á grundvelli taxtaverða, og meðfylgjandi upplýsinga, er markmiðið að gera samning til minnst þriggja ára, frá og með komandi sumri.

Áhugasöm geta kallað eftir gögnum með því að senda tölvupóst á kristjan@dalir.is. Gögnin verða send fyrst þriðjudaginn 14. mars n.k. og fyrirspurnafrestur til og með miðvikudags 22. mars.

Skilafrestur tilboða er kl. 13 á mánudaginn 3. apríl.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei