Hjóna – og paranámskeið

DalabyggðFréttir

Mæðgurnar Hrefna Hugosdóttir hjúkrunarfræðingur og fjölskyldumeðferðarfræðingur og María Játvarðardóttir félagsráðgjafi MA halda hjóna og paranámskeið í matsal Reykhólaskóla mánudagskvöldin 17. og 24. mars kl. 20:30 – 22.
Markmið með námskeiðinu er að styrkja og efla hjónabönd og parsambönd. Áhersla er á að fyrirbyggja vandamál og ekki þurfa að vera vandamál til staðar til að fólk mæti. Markmiðið er að gera hjónabandið skemmtilegra og styrkja fólk í sambandinu. Einnig verður komið inn á styrkingu fólks í foreldrahlutverkinu.
Umræðan í þjóðfélaginu snýst mikið um uppeldi, að við stöndum okkur í vinnu og að við lítum vel út. Einnig hefur umræðan opnast um andlega heilsu en lítil áhersla verið lögð á heilbrigði hjónabandsins. Úr þessu vilja þær mæðgur bæta.
Verð fyrir námskeiðið er 5.000 kr. Þeir sem koma keyrandi úr Dölum og Ströndum fá auka tveggja tíma stefnumót með maka sínum í bílnum á leiðinni og er lögð áhersla á að ferðin verði gerð skemmtileg!
Skráning er á netfanginu hrefnahugos @gmail.com og í síma 866 4570 hjá Maríu.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei