Hörputurn – lífrænn úrgangur

DalabyggðFréttir

Dalabyggð auglýsir eftir áhugasömum einstaklingum búsettum í dreifbýli Dalabyggðar til að taka þátt í tilraun með förgun lífræns úrgangs heima.
Dalabyggð leggur til svokallaða Hörputurna og sér um að koma þeim fyrir. Þátttakendur flokka lífrænan úrgang skv. leiðbeiningum og setja í turninn í stað þess að fara með hann í sorpgámana.
Þátttakendur skila skýrslu eftir tilsettan tíma þar sem meðal annars er upplýst um fjölda heimilismanna, hve langan tíma tók að fylla turninn og hver upplifun þátttakenda var af því að farga lífrænum úrgangi á þennan hátt.
Óskað er eftir fjórum þátttakendum. Áhugasamir hafi samband við sveitarstjóra með tölvupósti sveitarstjori@dalir.is eða í síma 430 4700.

Hörputurn – nánari upplýsingar

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei