Vegna tengivinnu er áætlað að loka fyrir kalt vatn tímabundið í suðurhluta Búðardals næsta miðvikudagsmorgun, 20. maí. Hefur þetta áhrif á öll íbúðarhús Brekku-, Bakka- og Lækjarhvamms auk húsa 1-9 við Stekkjarhvamm.
Skrúfað verður fyrir um kl. 9:30 og er vonast til þess að þrýstingur verði kominn á um hádegi, gangi allt að óskum.
Fyrirspurnir sendist á kristjan@dalir.is eða í gegnum síma skrifstofu Dalabyggðar.