Minnum á sumarbingó bókasafnsins 2023

DalabyggðFréttir

Héraðsbókasafn Dalasýslu verður lokað frá 30. júní til og með 9. ágúst nk. vegna sumarleyfa.  Síðasti opnunardagur fyrir sumarlokun er fimmtudagurinn 29. júní og viljum við því minna á sumarbingó bókasafnsins. Bingóið er lestrarátak Dalabyggðar yfir sumartímann fyrir börn á aldrinum 5-12 ára, hægt er að nálgast bingóspjöld á bókasafninu.

Markmið með lestrarátaki yfir sumartímann er að hvert barn lesi í sumar, viðhaldi leshraða, lesskilningi og njóti lestursins. Lestur ýtir undir betri og fjölbreyttari orðaforða, styður við þroska barna og eykur þekkingu þeirra á svo margan hátt. Skólar og bókasöfn standa reglulega fyrir lestrarátaki en yfir sumartímann er hætt við að lestur detti niður eða gleymist í fríi og ferðalögum.

Því ætlar sveitarfélagið Dalabyggð að leggi sitt af mörkum með lestrarátaki í samstarfi við Héraðsbókasafn Dalasýslu sumarið 2023, annað árið í röð.

Um er að ræða bókabingó í þremur aldursflokkum, þ.e. 5-7 ára, 8-9 ára og 10-12 ára.
Á hverju spjaldi eru nokkrir reitir, hver reitur lýsir aðstæðum eða athöfn sem skal framkvæma á meðan lestri stendur. Þegar viðkomandi reit er lokið er merkt við hann.
Aftan á hverju spjaldi er beðið um tímabil sem bók er lesin á, titil bókar og nafn höfundar og hve margar blaðsíður bókin er.

Hægt er að sækja bingóspjöld á bókasafnið frá og með fimmtudeginum 1. júní, til og með fimmtudeginum 29. júní og bingóið stendur yfir sumarið.
Þann 22. ágúst nk. skila börnin inn bingóspjaldinu sínu á Héraðsbókasafn Dalasýslu, milli kl.13:30-17:00 og í september verður svo uppskeruhátíð þar sem þátttakendur fá að launum glaðning ásamt viðurkenningarskjali fyrir að hafa lokið við bingóið.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei